Monday, July 19, 2010

Long time no see

Úff, erum orðin ansi löt við bloggið. Enda erum við frekar að njóta þess að vera hér í danaveldi saman :) Ég er enn löt við að blogga þannig ætla að hafa þetta myndablogg og segja bara stutt frá kannski :). Maður er alltof fljótur að gleyma sögum og minningum. Erum búin að fara 3x á ströndina, vinna, fara til Malmö, fá fyrstu heimsóknina frá mömmu og pabba :), eignast tyrkneskan vin í sjoppunni okkar, hjóla, sjá dóp selt í básum í Kristaníu o.fl. Höfum verið fremur löt við myndavélina líka þar sem maður nennir ekki að hafa svona stóra vel í töskunni öllum stundum.

Fyrsti kvöldverður mömmu og pabba, pizzabollur með pasta og hvítlauksbrauði a la Bjarki chef.

Lóla könguló sem gerði nokkra vefi hjá okkur, var á sama stað í langan tima svo alltaf þegar við ætluðum að ná henni, var hún horfin.

Kíktum á Laundromatcafe og þvoðum þvottinn okkar þar, á meðan þvottavélin gerði sitt verk fengum við okkur að borða. Þegar Bjarki opnaði tómatssósuna skvettist hún út um allar trissur, á gólf og stóla. Það má sjá á svip Bjarka að honum brá litla greyinu.

Kjúklingasamlokan mín

Ostborgarinn hans Bjarka. Mega gott allt saman, 40 metra fjarlægð frá okkur, og alltaf einhver íslendingur að vinna þarna. Þannig maður talar íslensku yfirleitt :) En mjög dýrt samt sem áður.

Hjóluðum lengi og langar leiðir með mömmu og pabba. Í blíðskapa veðri án sólarvarnar sem skilaði sér í bruna og rauðkuförum eftir boli. Hér er Bjarki með gott bóndafar eftir bolinn sinn, allt búið að breytast í Tan núna.
Skakka farið mitt eftir bolinn, það er ekki enn farið en sem betur fer aðeins búið að jafnast út.

Stjernemix ískassi :)

Stússast í eldhúsinu.

Bjarki og pabbi hjóluðu í NETTO.

Bjarki kaffærði mér í sjónum , hann var ekki að þola það hversu hægt ég fór í sjóinn.

Hittum svanafjölskyldu á leið heim frá ströndinni. Bjarki og Pabbi gáfu dúfum, öndum og svönum brauð úr lófa sér. Ég reyndi að halda mér í nálægð við Bjarka útaf þessar dúfur fljúga nú á mann mjög tilviljanakennt og án viðvörunar.

Eyddum degi í Malmö, það var ótrúlega gaman. Allt rosalega snyrtilegt og búðirnar mun betri, meira úrval og allar stærðir til. Skoðuðum okkur um og versluðum. Förum þangað aftur alveg bókað mál.


Þessir litlu svölu strákar voru að leika sér í Malmö. Svakalegir hiphopparar.

Bjarki beygði þessa byssu styttu alveg óvart. Sterkur gaur þar á ferð.

Torg í Malmö

Giant Sub er til í Malmö, 92 cm takk fyrir !!

Á leið heim eftir góðan og sveittan dag í Malmö.

Kaup Málmeyjar ferðar :



Í gær þvoðum við þvott og sátumst á laundromat á meðan við biðum með mömmu. Mamma fékk sér þetta ískaffi.

Ég fékk mér jarðaberja/banana smoothie

Fahitas kvöldverður hjá okkur á föstudaginn.

Köngulær.

Næturgöngutúr

Chaoo :)

Wednesday, July 7, 2010

Búð dagsins: Tiger

Góður matur, ofát, tilboð, hjól og afslöppun eru orðin sem fá seinustu dögum best lýst. Á sunnudaginn heimsóttum við Tinnu og Kasper og borðuðum saman. Mútta átti afmæli svo að við hittumst öll á skype saman til að óska gömlu kellu til hamingju með daginn. Við hlökkum til að sjá þig í lok júlí !

Við höfðum ákveðið að taka hjólin í lestina, svo við hjóluðum af stað út að Nørreport. Á leiðinni þangað klessir ógeðslegur rónaeiturlyfjafáviti á Helenu sem hafði örugglega stolið hjóli og ákveðið í vímu sinni að fara að hjóla. Í stað þess að biðjast fyrirgefningar byrjaði hann bara að elta Helenu og reyna að tala við hana. Ég var kominn yfir götuna en Helena lenti á rauðu ljósi og varð því að stoppa með þessu ógeði. Þann tíma sem hún beið eftir græna fékk hún að heyra "you very nice baby" og þess háttar tal, en Helena gerði rétt og horfði bara áfram. Svo þegar græna ljósið kom hjólaði hún af stað og hann að sjálfsögðu fylgdi en svo þegar hún stoppaði hjá mér þá loksins hætti hann.

Vinkonurnar í hláturskasti

Þegar við komum svo að lestarstöðinni og nýbúin að stimpla, þá segir einhver stelpa við Helenu að í dag þurfi ekki að stimpla því það væri frítt að fara í lestarnar. Svo þar fuku út um gluggann tvö klipp. En ekki var þetta búið því að þegar við komum inn í lestina þá sjáum við að lestin keyrir ekki að stoppistöðinni hjá Tinnu, heldur er endastöðin einni lestarstöð frá. Svo að við þurftum að hjóla þaðan til Tinnu. Við vorum ekki lengi að finna leiðina því að við fylgdum bara strætóstoppistöðvunum.

Sandkakan sem Helena bjó til

Tinna eldaði handa okkur kjúklingalasagna sem okkur fannst þrusugott og ætlum við að fá uppskriftina og hafa þetta í matinn einhverntímann. Birgðirnar okkar endast virkilega vel, við eigum enn slatta af kjúkling eftir og hakki svo að við erum bara í mjög góðum málum. Við eyðum ennþá ansi miklu í föt, hluti og mat og við ættum eiginlega að skammast okkar hvað við erum ennþá að spreða. Eeeeen við skulum ekki tala um það meira hérna, við njótum bara tímans saman hérna til hins ýtrasta.

Á meðan þau elduðu þá fórum við með Silju aðeins út á róló og held ég að hún hafi bara haft gaman af því hún hefur víst ekki gert annað en að spyrja "hvor er Bjarki og Helena hen?" síðan við fluttum.

Megastuð!

Þennan sunnudag fór hitinn í um 26° og var blankalogn. Við ákváðum að hjóla niður að vatninu í Lyngby sem er virkilega flottur staður. Sú ferð reyndist vera sveittari en hjólaferðin út í Føtex og endaði ég í kaldri sturtu hjá Tinnu eftir túrinn.


Andasaumaklúbbur

Safari jungle

Horfandi dreyminn um að komast hinum megin

Milljónir svona en engir froskar

Sætasta!

Við höfum verið ansi spök síðan á sunnudaginn, ekki mikið gert en að njóta þess að vera búin svona snemma og labba bara um. Mest allur tíminn hefur farið í að ákveða hvað ætti að vera í matinn og svo útbúa hann.
Á mánudaginn langaði okkur að útbúa kjúklingasamloku því það er tilboð á dressingum í Nettó :)





Samlokan var bara virkilega góð, ég bjóst við að geta borðað tvær en með öllu grænmetinu sem fylgdi þá urðum við bara pakksödd.

Svo daginn eftir gerðumst við ítölsk og bökuðum calzone úr afgöngnunum af kjúklingnum. Einnig bættum við smá fersku spínati við og pizzasósu.





Mikið lifandi ósköp var þetta gott. Ein svona sprengdi mig næstum því. Við höfðum þó aðeins of mikinn ost því að allt í einu stóð í Helenu. Hún náði þó að redda sér með því að hósta aðeins og fá sér að drekka.

Nú fer að styttast í að fólk fari að heimsækja okkur í kotið. Mamma og pabbi hennar Helenu koma eftir tæpa viku, pabbi kemur 21 júlí og mamma svo 26 júlí. Svo erum við búin að fá staðfest að Sólrún ætlar að fá að gista hérna með okkur í 2 daga í byrjun ágúst, og svo Helena Rós um miðjan ágúst.

Í dag hjóluðum við í Fælledparken og lágum þar aðeins í sólinni. Við fórum líka í hackysack því loksins fann ég bolta í Tiger. Tiger er virkilega flott búð hérna í Danmörku, örugglega heima líka, ég hef bara aldrei spáð í því. Þarna var fullt flott hægt að finna í íbúðina okkar og munum við nýta okkur Tiger þegar við flytjum í okkar eigin íbúð.

Gosbrunnur í Fælledparken

Hackysack boltarnir og svo awesome baukur fyrir klinkið okkar!

Helena í Samsø-Samsø skóm og stuttbuxum


Helena tók aðeins í gítarinn, hún er fljót að læra!



Í dag kom ég Helenu á óvart og keypti úrið handa henni sem hún var að skoða í dag. Ég lét hana fá smá samviskubit þegar hún var að skoða það og sagði að við værum búin að eyða svo miklu. En útaf því að hún kom mér á óvart með bókina þá ákvað ég að gera hið sama og hjólaði og keypti úrið ásamt svona hjarta úr Tiger. Snickersið er einnig úr Tiger híhí.



Það sem Helena náði að versla sér úr Samsø Samsø. Blái innkaupapokinn er umhverfisvænn og mun koma sér vel í verslunarferðunum okkar í Nettó.


Núna sitjum við og horfum á Þýskaland - Spán. Við keyptum okkur aðgang að TV2 á netinu fyrir 79 kr því að Danir eru ekkert að sýna leikinn frítt á netinu eins og næstum alls staðar annars staðar. Gallinn er að netið er cirka 1 mínútu eftir á, og alltaf þegar það gerist eitthvað rosalegt í leiknum heyrum við öskrin úr næstu blokk eða af næsta pöbb, svo þau eyðileggja leikinn eiginlega fyrir okkur!



Saturday, July 3, 2010

Halló halló halló

Mið : Bjarki var með næsta yfirmanni okkar. Þ.e.a.s. Ulle er aðal og svo er hún Connie. Hún kenndi Bjarka að þrífa allt öðruvísi en hann var vanur og þá fóru taugarnar hans aðeins af stað og smá stress kom. En það gekk nú allt vel og var hann búinn snemma.
Konurnar sem ég og ein önnur íslensk stelpa vinnum með og tökum við svæðunum þeirra núna þegar þær fara í frí, hlæja að því hvað við séum hvítar. Ein sagði við mig : hún Katrín sofnaði í sólinni og varð öll eldrauð, því hún er að sjálfsögðu svona hvít eins og þú. Og þær skellihlógu. Halda greinilega að allir Íslendingar séu skjannahvítir útaf því að við erum það, hefði nú átt að sýna þeim mynd af þér Helena Rós ! Þeim hefði nú brugðið og eflaust haldið að þú værir alltaf í ljósum og að bera á þig brúnkukrem.

Þvottavél nr.4

Hjóluðum heim og tókum saman þvott, löbbuðum í nokkur þvottahús til að athuga hvað væri ódýrast en það kostaði alls staðar það sama svo að við fórum bara í eitt sem er hér 30m frá íbúðinni. Það kostar 30krónur að lata í eina vél = 620 íslenskar. Frekar mikið þannig við pössum okkur að safna 7 kg til að þetta nýtist nú sem best. Annars erum við ömurleg að spara þrátt fyrir að það sé gaman að líta svona vel út í blogginu að segja ykkur frá tilboðum haha. En við pössum okkur nú alveg, erum ekki orðin blönk ennþá :) Löbbuðum um hverfið á meðan þvottavélin vann sitt verk.
Svo er pizzastaður sem heitir Vicky's bagel í blokkinni okkar og við stóðumst ekki mátið og prófuðum, rosalega góð miðað við ógeðslegu pizzuna sem við fengum okkur fyrsta daginn hér á Norrebro. Snickers is í eftirrétt.

mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm.....

Nettastur, Justin Bieber


Fim : Bjarki með rosalega leiðinlegri og strangri konu í vinnunni. Hún kallaði alla letinga og lét Bjarka gera allt. Og þetta var akkúrat eini dagurinn þar sem Bjarki svaf rosalega illa og vaknaði þvílíkt slappur með hausverk og hafði enga matarlyst. En í 9 kaffinu fekk hann mat og verkjartöflu og þá gat hann nú heldur betur sýnt kjéllingunni hvað í honum bjó og þreif allt hátt og lágt. Þessi kona þurfti svo að fara til læknis vegna þess að henni var svo illt í höndinni og Bjarki þurfti að vera einn með svæðið hennar (sem er erfiðasta, leiðinlegasta og skítugasta svæðið) næsta dag (föstudaginn). Hjóluðum heim úr vinnunni og lögðum okkur pinkupons.

Paradis ís, mmm

Síðan komu Silja, Viktor, Tinna og Kasper og fórum við á St.Hans Torv og lágum þar í grasinu að leika okkur og sóla. Fengum okkur ís og horfðum á fuglastríð, dúfur og maríubjalla réðst á mig. Rosalega kósí og heitt.


Átu úr ruslafötunum og rifust þessir fuglar, skárri en bévítans dúfurnar samt

Systkinin að vera sæt.

Sjáið það í videoinu hér að neðan. Horfðum á inspired by iceland tónleikana um kvöldið :) Það hefði nú verið gaman að fara á þá. Fengum okkur kjúllasalat í kvöldmat, mega gott :) Notuðum afganga frá fahitas.




namminamm

Fös : Bjarki einn með svæðið hjá konunni. Það var nú þó skárra en að hafa hana rekandi á eftir honum og skipa honum fyrir. Fengum við ekki að fara klukkan 10 eins og alla aðra föstudaga. Engin veit af hverju en mér skildist að það væri vegna þess að það var fólk að koma og skoða hversu hreint allt væri. Og jiii slúðruðu kellingarnar um það að það var ekki leyft að fara einum tíma fyrr, alltaf þegar þær mættu annarri á ganginum þa voru teknar 10-15 mín að tala um þetta allt saman og hvenær aðalgellurnar sem sjá um öll hreingerningarvinnur í Kaupmannahöfn koma og kl. hvað. Svo loka ég nú bara fyrir eyrun og fer að labba um og fylgjast með túristunum taka myndir af ráðhúsinu og pósa.

Kaup föstudagsins

En dagurinn var rosa fínn, ég er loksins farin að mega gera allt og hún treystir mér voða vel fyrir svæðinu sínu, sem betur fer. Hún er alltaf að baktala og slúðra um fólk sem hefur tekið við af henni og það gerði allt rosa illa en hún segir við mig að þetta verði ekkert mál fyrir mig. Vonum að það reynist satt. Eftir vinnu komum við heim og fengum okkur smá kríu, mmm það var gott. Síðan hjóluðum við niðrí bæ og ég keypti buxur og bók handa Bjarka í tilefni þess að hann hefur þolað mig í 1 og 1/2 ár. Tíminn líður sko hratt.

Bjarki ánægður með buxurnar og bókina :)

Bókin heitir 1001 albums you must hear before you die) rosalega skemmtileg bók og væri gaman að safna þessum 1001 bókum, til allskonar 1001 movies you have to see before you die, places you have to visit og fleira. Við flettum alltaf upp bara einhverstaðar í henni og látum þann disk á spotify og hlustum. Erum að uppgötva þvílíkt margar hljómsveitir og lög.

Hrabba og Begga kátar.

Um kvöldið komu svo Hrafnhildur og Bergþóra í pizzu og bjór og kíktum við aðeins út á lífið. Fórum á bar þar sem var live band, jazz band. Það er nefnilega jazz festival í gangi núna í Kaupmannahöfn og allstaðar verið að spila. Mjög skemmtilegt kvöld, minningar sem því miður við festum ekki á filmu. Japönsk/japanskur kona/maður sem fór á kostum í dansi og rokki en vildi svo sannarlega ekki dansa við Bjarka! Vorum allt kvöldi að reyna finna út hvort þetta væri karl eða kona en gátum ekki séð það. Dansaði þvílíka river dansa, rokk dansa, emo dansa og listræna dansa. Allur pakkinn bara. Ragnheiður þetta hefði svo verið eitthvað fyrir þig, hefðum skemmt okkur vel að dansa við þessa/þennan japana !!!

Bandið

Japanin/n að taka gítarsóló !

Erum ekki nógu dugleg að taka myndir þegar við erum að gera eitthvað. Leiðinlegt að burðast með stóru vélina mína.


Í sólinni með Mountain Dew (buin að leita út um allt !!!)

Í dag var svo brjálaður hiti og Bjarki var nú ekki að meika það (ekki ég eiginilega heldur) þannig við röltum bara aðeins um og vorum svo heima bara að hlusta á tónlist og chilla. Bjarki að spila á gítarinn og ég að lesa sálfræðibók. Bjarki fékk sér svo smá kríu og á meðan þreif ég íbúðina. Bjarki eldaði pizzabollurnar sínar góðu. Síðan bakaði ég köku handa okkur og við snæddum köku, jarðaber og ís í eftirrétt. Það er laugardagur í dag sem þýðir að ég má fara í stóru nammibúðina hjá Tyrkjanum og ég ætla nú að stökkva út og kaupa mer svolítið bland í poka.

smá pasta með

Myndarlegur í eldhúsinu

haha smá ógirnileg, en góð var hún.

Jarðaber

Við erum búin að fá alveg þónokkrar staðfestar heimsóknir, ma og pa koma og ma og pa Bjarka, Helena Rós kemur einnig. Bekkjarbróðir Bjarka flytur bráðlega til Köben þannig þá verður fjör á bæ.

Á morgun var planið að fara á ströndina en það er spáð rigningu þannig við ætlum til Tinnu í staðinn.

Afsakið lelegt blogg, er svo þreytt en vildi samt gefa ykkur smá update :)