Tuesday, June 29, 2010

Reifarakaup

Jæja ágæta fólk, nú sitjum við tvö skutuhjúin í holunni okkar með rólega tónlist eftir erfiðan dag og skrifum þetta. Í gær kl 18:00 fengum við íbúðina okkar loksins eftir langa bið, þó að dvölin hjá Tinnu hafði verið afskaplega þægileg og góð, og söknum við þeirra strax. En það er alltaf gott að koma í sitt "eigið" og eyddum við kvöldinu í að koma okkur vel fyrir því þetta verður heimili okkar til 1.september. Þó að þessi íbúð sé aðeins rúmir 40 fermetrar, þá er hún ein sú hlýlegasta og þægilegasta íbúð sem hægt væri að óska sér, enda höfum við núna hreiðrað vel um okkur!







Það fyrsta sem við gerðum var í rauninni að finna netið því enginn er maður án nets enda er netaðgangur mannsins í fyrstu greinum mannréttindalaganna. Ítarleg leit skilaði engri niðurstöðu og hringdum við móðursjúk í Mathilde sem leigir okkur íbúðina og spyrjum hana hvort að það hafi ekki fylgt net með íbúðinni (því við vorum nokkuð viss um að hún hafi nefnt það í upphafi að það væri net) og hún sagði okkur til mikillar ánægju að snúran héngi á bak við einhvern skáp (eini staðurinn sem við vorum ekki búin að leita á). Við grétum úr gleði og stungum kaplinum í tölvuna og tókum út einn facebook-skammt sem róaði taugarnar.

En eftir allt stressið vorum við orðin ansi svöng og höfðum við ákveðið fyrr um daginn að fara á uppáhalds pizzustaðinn minn hér í Köben, Fælledvejpizza, sem liggur hér í 2 mín fjarlægð, mjög svo hentugt. Við örkuðum af stað glöð í bragði og tókum eftir því á leiðinni að hér í Köben situr fjöldinn af fólki bara á jörðinni með einn kaldann og nýtur veðurins, jafnvel þótt klukkan sé langt yfir kvöldmatartíma. Ætli þetta sé ekki þessi dana-andi, ligeglad og alles klar, sem við vonum að við munum kynnast og taka með til Íslands.


En þegar við komum fyrir utan pizzastaðinn sáum við að þeir höfðu að sjálfsögðu ákveðið að taka sér frí frá pizzugerðinni í heilann mánuð, og akkúrat á flutningadag okkar, þann 28 júní. Þeir höfðu greinilega heyrt að við værum að flytja í hverfið og bara ákveðið að flýja. Ekki vissum við að við værum svona dómhörð á pizzunar okkar. Kvöldmaturinn endaði á pizzu frá öðrum stað, jafnvel frá öðrum hnetti því þetta var ein versta pizza sem við höfum smakkað.



En í dag gátum við í fyrsta skipti hjólað í vinnunna og var það afskaplega hressandi. Við vöknuðum tæplega klukkustund seinna en við gerðum þegar við bjuggum hjá Tinnu og munaði þessi klukkutími mjög miklu! Klukkan hálf 6 var sest á hnakkinn brunað af stað. Við runnum í hlaðið cirka 10 mín í 6 sem er mjög fínn tími. (hér vill Helena segja eitthvað um að ég hafi verið stressaður á hjólinu að ná þessu ekki, en ég kannast ekkert við það, enda sallarólegur í flestum tilvikum...)
Við lukum vinnu hálf 11 og brunuðum heim í sturtu. Í gærkvöldi höfðum við gert matarplan fyrir vikuna og skrifað niður öll tilboðin sem hentaði okkur og matargerð vikunnar. Svo að eftir smá stopp heima fyrir löbbuðum við út í Nettó og í fyrsta skipti tókum við kerru í stað handkörfu, því við ætluðum sko að verzla inn! Tilboðin voru góð og fengum við 2 kg af kjúlla, hakki og gulrótum á virkilega góðum prís! Svo versluðum við margt annað inn sem okkur þótti nauðsynlegt að eiga næstu vikurnar því við erum búin að plana að fara helst 1-2 sinnum að versla í viku, ekki oftar, og því ætluðum við bara að kaupa nóg, og helst aðeins tilboð !

Þetta kostaði allt í allt 537 kr sem er um 12 þúsund krónur held ég heima. Okkur finnst það ágætlega sloppið höldum við, þó að við höfum nú ekki mikla reynslu á að versla svona mikið heima.

Stútfullir pokar, drullu þungir!

Þess má til gamans geta að þessi Netto sem við fórum í hafði tekið upp á eingöngu sjálfsafgreiðslu, svo að við stóðum eins og fávitar að reyna að stimpla allt draslið inn og voru komnir 2 starfsmenn að fylgjast vel með okkur og hjálpa okkur því við vorum búin að tefja alla röðina fyrir aftan. Einnig stálum við 2 bönunum, mér fannst ég aðeins sjá 5 banana en þeir voru víst 7. Ætli við gefum ekki einhverjum heimilislausum pening á næstunni og segjum að það sé bara frá Nettó til að styrkja Karmað aftur.

Þegar við höfðum svo dröslast með þessa níðþungu poka heim var stefnan tekin á Føtex því þar voru tilboð á örbylgjuofnum! Já þú ert að lesa rétt, við splæstum í eitt stykki öbba því það var það eina sem vantaði í íbúðina og við verðum að hafa hann til að hita upp afganga og hafragrautinn. Hann kostaði aðeins 399 kr, spottprís fyrir Samsung kvikyndi. Helena var aðeins efins um að við ættum að hjóla út eftir honum en ég sannfærði hana um að ofninn tæki ekkert það mikið pláss og ég gæti örugglega bara hjólað með hann í annari! Annað kom á daginn, þetta var risa kassi og níðþungur, svo að við settum hann upp á bögglaberann á hjólinu hennar Helenu, hún hélt við hann á meðan ég reiddi hjólin. Føtex var í 2km fjarlægð svo að eftir 15 mínútna sveitt labb til baka í þessari hitabylgju vorum við orðin vel sveitt og pirruð þegar loksins var komið á leiðarenda. En við hresstumst strax við þegar við sáum hvað hann er fallegur og passar vel inn í eldhúsið. Til að hrósa okkur fyrir vel unnið verk fengum við okkur ristað brauð með súkkulaði, gulrót og mjólk.



Eftir þetta hjóluðum við aðeins niður í bæ til að fara í Rema-1000, H&M og Monki. Í Rema var nefnilega tilboð á haframjölinu okkar, aðeins 12 kall. Rema liggur rétt hjá þar sem við vinnum en við látum það ekki á okkur fá til að fá þetta á svona spottprís! Svo í H&M náði ég að kaupa mér þægilega vinnuskó. Í Monki var síðan virkilega góð útsala á flottum fötum. Ég hélt að Helena ætlaði að kaupa búðina en ég náði henni svo loksins út úr búðinni en hún hafði þá keypt 2 boli, skó og tösku á skid og ingen ting eins og daninn myndi orða þetta.


Í kvöldmat fengum við okkur okkar margfræga fajitas og ætlum við síðan að nota afgangana úr því í kjúklingasallat á morgun. Vonandi tekst okkur að halda plönunum okkar um sparsemi og hófsemi. Það er kannski ekki hægt að kalla okkur hófsöm í dag, en við keyptum nánast allt á tilboðum og margt af því nauðsynjavörur!

Svo að eftir þennan langa dag er ég næstum því að sofna við að skrifa þetta og hlakka ég til að fara snemma í háttinn.

Góða nótt







Hér er algjör Paradis

Saturday, June 26, 2010

Lalala




Hellú hellú :)
Nú erum við byrjuð í vinnunni í Ráðhúsinu. Við vöknum klukkan hálf 5 á morgnanna og tökum lestina kl.5 í 30 mín. Rosalega hressandi, mætum ungum stúdentum og fólki sem er að fara heim af djamminu að sofa. Það sem kom mér samt verulega á óvart var hversu mikið fólk er á ferli klukkan 5 að morgni til, á Hovedbanegården, búðirnar búnar að opna og nánast engnir rónar. Okkur hlakkar nú ekkert smá til að geta vaknað klst seinna og hjóla í vinnuna.
Fáum íbúðina á mánudaginn, þá verðum við alveg downtown, æðisleg staðsetning.
Vinnan er aðeins of nice, skúrum, moppum og þurrkum af á sniglahraða. Maður þarf að reyna finna sér eitthvað að gera eins og t.d. þrífa glös og diska í vaski í stað uppþvottavélar, pússa skráargöt, þrífa gluggakistur, gefa blómum vatn og margt fleira til þess að geta verið í vinnunni til kl. 11. Konurnar sem vinna þarna eru alltaf að spurja okkur hvort við séum ekki þreytt ef við erum búin að ryksuga eða skúra eina skrifstofu, greinilega finnst þeim þetta erfiðara en okkur. Ef maður vinnur hratt segja þær ; neinei ekki svona hratt bara hægt og rólega. Semsagt núna fyrstu dagana verðum við með konum sem eru að kenna okkur og svona, svo munum við líklegast vera bara ein og þá getur maður haft ipod bara og svona :)
Við mætum til vinnu kl. 6:00 síðan er kaffitími strax kl. 7:00 sem á að vera í 10mín en þær taka allar 20-40 mínútur. Svo er unnið til 9 og þá er kaffitími í 30 mín sem verður yfirleitt að 45 mín. Á föstudögum má svo yfirleitt fara klst fyrr, þannig að á föstudögum eftir seinna kaffið erum við að vinna í korter og svo heim. Þetta er alveg óóólýsanlega nice og góð vinna sem líður svo hratt og náttúrulega þvílíkt frábært að vera búin svona snemma og eiga allan daginn eftir !
Við vorum að hugsa um það um daginn að ef þetta væri á Íslandi þá væru örugglega bara svona 5 starfsmenn með ráðhúsið en hér eru starfsmennirnir 20-30 !
Bjarki er rosalega duglegur og góður í dönskunni en ég er ekki alveg jafn mikið fyrir að tala hana þar sem allt kemur svolítið skringilega út hjá mér. Konan sem kennir mér er líka gömul og er ekkert að tala hægar fyrir mig heldur talar bara eins og ég sé dönsk en ég skil nú það mikilvægasta. Konan sem kennir Bjarka er hinsvegar tyrknesk þannig hun talar mjög skýra og einfalda dönsku og kemur þeim mjög vel saman. Konurnar sem vinna þarna með okkur slúðra og slúðra og tala mikið um hvað lífið þeirra er ömurlegt og kvarta rosalega mikið en samt eru þær nú rosa finar og við erum ekkert smá ánægð með þessa vinnu. Þessir fáu tímar líða eins og nokkrar mínútur, og líka gott að fá að hittast í 9 kaffinu. Svo eru líka 3 aðrir íslendingar að vinna með okkur þannig við sitjum öll saman í kaffinu :)

Viktor snúlli

Dúllur

Á miðvikudaginn mættum við fyrsta vinnudaginn okkar í Ráðhúsið hress og kát og kláruðum daginn þar, fórum svo bara heim. Ég fékk ekki að gera neitt nema að horfa á konuna þrífa, hún er með aðalskrifstofurnar allavega stærstu og hjá meistaranum svo þrífum við líka 2 fundarsali. Svo dagurinn leið nú frekar hægar hjá mér heldur en Bjarka. Þvílíkt þreytt en ég náði að pína mig til þess að sofa ekki um daginn en Bjarki fékk sér stuttan lúr. Við sóttum Silju litlu á leikskólann og fórum í Rema að versla aðeins. Bökuðum mjög skrítna köku fyrir matarboð sem Tinna og Kasper voru að halda um kvöldið. Því miður bragðaðist hún rosalega illa, hugsanlega vegna mistaka í vigtinni. Allavega fannst okkur við alveg fara eftir uppskriftinni.
Í matarboðinu var grillaður kjúklingur á spjóti með meðlæti, ótrúlega gott. Ég og Bjarki vorum svo niðri í herbergi bara að taka til og fórum ágætlega snemma að sofa bara, ætluðum samt að fara sofa kl. 21:00 en svo komst ég algjörlega yfir þreytuna og fór í svefngalsa. Þá hlæ ég og tek til og Bjarki gat ekki mikið sofið í þeim látum.

Silja sæta að biða eftir matnum.

Hamborgarar á fimmtudaginn.

Á fimmtudaginn vorum við hress og kát í vinnunni (of course) og kláruðum kl. 11. Ég fékk að ryksuga, moppa og skipta á ruslapokum (allt að koma). Eftir vinnu kíktum við aðeins í bæinn og vorum við bæði að drepast í löppunum enda á ömurlegum skóm. Bjarki keypti sér sandala og 2 boli og ég fékk mér eina strigaskó. Mikið vorum við fegin að komast í betri skó. Bjarki henti gömlu skónnum á Strikinu og við vonum bara að einhver heimilislaus hafi náð í þá :)
Danmörk - Japan var síðan um kvöldið, skítaleikur fyrir Dani. Ætluðum að fara á Ráðhústorgið en nenntum svo ekki, sem betur fer. Danirnir hafa verið klikkaðir þar.


REMA 1000

Bjarki að pósa

Skór




Í gær (fös) mættum við kl. 6:00 og vorum búin kl. 10:00 (sama tíma og búðirnar opna!!) Þegar við mættum í vinnuna vorum við í sjokki ALLT út í drasli á Ráðhústorginu (eftir leikinn) og glerflöskur brotnar út um allt, þegar við löbbuðum heyrðist svona klístur hljóð undir fótunum vegna þess að þeir hafa hent bjór út um allt. Búið var að henda glerflöskum á risaskjáinn og pappírsdrasl ALLSTAÐAR. Pissulykt og bjórlykt einkenndi þennan morgun á Ráðhústorginu.
Ég meikaði nú ekki að mega ekkert gera þannig ég beið ekkert eftir því að hún sagði mer að gera eitthvað heldur tók bara tusku og þreif og ryksugaði og fleira. Held nú að hún hafi ekki verið neitt rosalega pirruð með það.
Síðan hittumst við í kaffinu þar sem ég villtist í ráðhúsinu og var 10 mín að koma mer niðrí kaffistofu þar sem Bjarki beið. Þar var Bjarki tilbúin með brauð handa okkur og ég spyr hann hvar hann hafi fengið þetta brauð og hann lítur á borðið og skilur ekkert í því að það sé ekki þar (Asísk kona var að skera það niður á sama tíma og hann fékk sér). Svo þegar við erum að borga fyrir brauðið og rúnstykkið mitt, kókið og sultuna og konan segir að þetta kosti bara 20 þá skiljum við ekkert en erum fegin því og réttum henni bara 20 krónur. Furðu ódýrt, héldum að hún hafi bara gleymt að slá kókið og rúnstykkið inn. Síðan sér Bjarki asísku konuna sem var að skera þetta blessaða brauð með brauðið sitt í poka. Hún hafði komið í sakleysi sínu með brauð sem hún átti og hún var að bjóða Bjarka hnífinn ekki brauðið þegar hann sagði : JA tak og tók bara brauðið af hennni. Konan greyið þorði ekkert að segja. En Bjarki allavega kom út eins og hin mesta frekja sem tekur brauð af litlum asískum þrífingarkonum.
Við kíktum smá í búðir eftir vinnu og náði ég að kaupa gallastuttbuxur, jakka og 2 boli.
Við lögðum okkur svo þegar við komum heim enda máttum við sofa út í dag og vaka lengi. Elduðum pizzu handa fjölskyldunni í gær, eina með peppó og svo var hin með allskonar drasli, sveppum,maís,beikoni,papríku,skinku og lauk.





Pizzur á föstudagskvöldi.

Fötin sem voru keypt fim. og fös.

Erum ekkert smá spennt að fá íbúðina okkar á mánudaginn kl.18:00. Þá bloggum við og segjum ykkur hvernig okkur líst á þetta litla hreiður. Erum að passa Silju litlu núna, rosa stuð. Söngvaborg og ís getur ekki klikkað.Veðrið átti að vera alveg æðislega gott, glampandi sól og engin ský en það er nú búið að vera skýjað. Svo maður á nú ekkert að vera að treysta á þessa blessuðu spár. En nú í kvöld er geðveikt veður sól og hiti. Vonandi fer sólin að sýna sig á daginn líka :)

Flugum, löbbuðum og hlupum á bensínstöðina áðan.




Pöddumyndasafnið mitt :

Einhverskonar maurafluga.

VIÐBJOÐSLEG fluga sem kom inn um daginn, engin þekkti þetta ógeð. Vorum skíthrædd en reyndum að halda ró okkar svo Silja litla myndi ekki verða hrædd.
Sæt könguló í vefnum sínum. Hugsa að ég hafi labbað á eða vefur fokið á mig svona 100 sinnum +.

Bestu vinir, snigill og könguló.

Fiðrildi.

Tel dúfur vera pöddur, skíthrædd við þessi dýr !

Tuesday, June 22, 2010

Skattur 0 - 1 Helena & Bjarki [Kvörtunarblogg]

Jæja, seinustu dagar hafa ekki verið sérstaklega skemmtilegir fyrir okkur Helenu og hefur það endurspeglað hve lítið við höfum skrifað hér. Við höfum mest haldið okkur hérna í Lyngby því við erum að spara klippikortin í lestarnar, því við þurfum á þeim að halda þegar við förum að vinna. Á föstudaginn tókum við húsið í gegn og þrifum allt hátt og lágt því Tinna og fjölskylda komu heim svo daginn eftir. Ég átti svo að sækja þau um hálf 3 leitið og lagði ég spakur af stað um 2 því áætlaður tími að keyra héðan til Kastrup er 20 mín.
Ég settist inn í bílinn, styllti GPS'ið og lagði af stað. Ég var ekki búinn að vera lengur en 5 mínútur á hraðbrautinni þegar skrambans tækið vill að ég beygi útaf á næstu afrein, sem ég og geri. Og þá hefst stressið. Allt í einu er ég staddur í íbúðahverfum á meðalhraðanum 50-60 km hraða og ég spyr mig hvar í fjandanum ég sé...
En ég segi við sjálfan mig að ég er á réttri leið, ég mundi 100% eftir því að ég hafði stillt tækið rétt og ekki var mikið í húfi því ég hafði gemsann og þau gátu hringt í mig þegar þau átta sig á því að ég er ekki kominn. Svo ég keyrði bara eins og tækið sagði mér að keyra og það tók mig þvers og kruss um Kaupmannahöfn, ég keyrði fram hjá Rådhuspladsen og Tivolinu, skattinum sem við höfðum verið í seinustu viku og fram hjá Fiskitorvet. Þó nokkrum sinnum var ég viss um að ég væri að keyra á móti umferð og bjóst alltaf við að allir myndu bipa á mig eða ég myndi keyra á hjól, en svo varð ekki. Svo loksins í lokin þá drattaðist tækið með mig aftur uppá hraðbraut í 5 mínútur og þá var ég loksins kominn á leiðarenda, 20 mínútum of seinn. En fluginu seinkaði aðeins svo að eftir á að hugsa var ég bara nokkuð ánægður með þennan útsýnistúr sem tækið gaf mér.

Helena sátt eftir vel unnið verk í dag

En í gær fórum við til hennar Ullu í ráðhúsinu til að reyna að flýta fyrir að fá kennitölu. Við hittum hana og aðra konu sem hét Connie. Connie labbaði með okkur á svokallað Borgerservice, og talaði hún fyrir okkar hönd við ágætan mann sem var fullviss um að við gætum bara tekið lestina út til skattsins og fengið kennitölurnar okkar samdægurs. Eftir þetta röltuðum við til baka í ráðhúsið og töluðum aftur við Ullu. Hún efaðist mjög mikið um að við gætum farið í skattinn bara sí svona og fengið kennitöluna, og kallaði hún í íslenskan strák sem var að vinna og hann sagði okkur að við ættum að fara í Nordjob, þeir myndu útskýra allt.

Það leist okkur betur á og tókum við strætóinn út til þar sem Nordjob er. Þegar þangað var komið blasti við okkur einungis blokkaríbúðir. Sem betur fer var þetta lítil gata svo að við leituðum á öllum dyrabjöllum eftir ,,Nordjob" en fundum ekkert. Eftir 15 mínútna labb um þessa bansettu götu kemur maður labbandi (held að hann hafi verið að koma úr mat) og horfir skringilega á okkur, enda vorum við eins og hálfvitar að labba í hringi. Hann spyr okkur ,,Kan jeg hjælp med noget" og ég segi að við séum að leita að Nordjob. Og voila, þetta var víst gaur sem vann í Nordjob og hleypti hann okkur inn.

Smá innskot : ég held að Nordjob vanti starfsmenn og skilti fyrir utan því það stóð hvergi að þetta var Nordjob, og uppi á skrifstofunni var enginn! Í fyrstu hélt ég að þessi gaur ætlaði að myrða okkur því hann var aðeins of vingjarnlegur að hleypa okkur inn.

Ég tjái þessum gæja erindi okkar og hann segir að hann viti ekki neitt, og sá sem sér um svona mál heitir Klaus og hann mætir ekki fyrr en hálf 2, klukkan þá var 12! Svo að enn eitt svekkelsið þar á ferð.
Svo að við ákveðum að fara út til skattsins og reyna á það sem náunginn á Borgarservice'inu sagði. Frá Nordjob þurftum við því að taka strætó til Nørreport, þaðan taka lest og svo strætó. Eftir 40 mínútur erum við komin til skattsins og máttum við bíða þar í góðan hálftíma eftir að fá viðtal. Ég útskýri fyrir honum hvað gæinn hjá borginni hafði sagt og sagði honum að við þyrftum að fá kennitöluna í snatri því við ættum að fara að vinna daginn eftir. Þá var eins og ég hefði móðgað fjölskyldu hans því hann hreytti því út úr sér að borgin vissi ekkert hvað hún væri að tala um og við gætum bara ekkert fengið kennitölu fyrr en við myndum sýna fram á einhverskonar vinnusamning, sem við höfðum löngu skilað til hans, en hann gat ekki skilið það á minni bjöguðu dönsku.

Á sunnudaginn bökuðum við köku :)

Ef þú ert ennþá að lesa þá ætla ég að lina þjáningar þínar og gera langa sögu stutta. Við skriðum hálfpartin til baka heim í Lyngby: svekkt, fúl, sveitt, svöng og þyrst, með ekkert í höndnum eftir 7 tíma ströggl.

En í dag gerðist allt sem við höfum beðið eftir. Tinna hringdi í morgun hálf öskrandi í skattinn og drullaði vel yfir þjónustuna þeirra og útskýrði fyrir þeim að þeir höfðu ekkert gert nema rugla okkur. Konan sem hún talaði við sagðist ætla að hringja aftur og kl 9 í morgun hringir einn af þessum köllum skömmustulegur og segir að "hann hafi fundið þetta í póstinum og þetta væri komið". Við sóttum þetta svo í dag og í leiðinni fórum við í bankann og fengum reikning, og erum við þá klár í að mæta í fyrramálið að vinna, jibbíjey!!!

Seinnipartinn í dag sóttum við Silju á leikskólann og fórum að versla inn. Við elduðum svo fajitas og ætlum að fara snemma í háttinn því við þurfum að vakna korter í 5 til að ná lest og mæta á réttum tíma. Endilega óskið okkur góðs gengis :)

Silja með bestu vinkonu sinni sem gaf henni djús og rúsínur




Þegar við komum frá bankanum fögnuðum við út á palli með köldum breezer (á tilboði í Rema á 10 kall :) ) því okkur fannst við eiga það skilið, enda var mjög gott veður.

Það besta við þennan skítamánudag var að við fengum okkur pizzu frá vini okkar Mario



Thursday, June 17, 2010

Sól og sumar

Heil og sæl kæru hálsar.
Jæja nú erum við mætt hér aftur, ég er að safna pöddu- og dýramyndum fyrir komandi pöddublogg. Bíðið spennt, skíthrædd við þessar köngulær og þúsundfætlur sem sækja hér í hús og garða. Býflugurnar eru mun þróaðri en heima og líta skringilega út.
Eins og þið kæru lesendur hafið tekið eftir þá erum við í miklum matarpælingum og fylgjum tilboðum og afsláttum eftir hvert sem er. En þrátt fyrir það eigum við einnig við mikið vandamál að stríða og það er ........
....
.....
OFKAUP !! veit nú ekki hvort það er orð en ef ekki þá bý ég það til hér með. Þannig er mál með vexti að við förum í búðina á hverjum degi, tilbúin með innkaupalista yfir það sem versla þarf. En viti menn alltaf endum við með fleiri poka en gert var ráð fyrir. Okkur finnst nefnilega svo voðalega gaman í búðini og sérstaklega þá Rema 1000, þau eru dugleg að koma með bæklinga í hverri viku með helling af tilboðum og lýst okkur svo ægilega vel á þau öll. Þannig það heyrist ósjaldan í mér eða Bjarka : Hey, sjáðu. Þetta kostar bara 12 krónur !!!! Venjulega kostar þetta 20. Verðum að fá eitt stykki af þessu. Og : vááá ertu að djóka eigum við ekki að kaupa meira en bara 1 stk ??? Það koma ekki svona tilboð á hverjum degi.
En hér eftir ætlum við að reyna að fara sjaldnar í búðina og vera ströng hvort við annað í því að kaupa einungis það sem stendur á listanum.

Þessi pizza var í matinn hjá okkur þriðjudagskvöldið (óbökuð á mynd)





og já !! LOKSINS fann ég Snickers ísinn minn. Höfum leitað hans út um allt. En hann er nú ansi dýr. 6 Stk á tilboði í Rema 1000 á fim,fös og lau. Nýttum okkur það að sjálfsögðu.

Á fimmtudaginn kom elsku sólin á kreik. Úff það var þvílíkur hiti og ákváðum við að taka aðeins til í garðinum fyrir Tinnu. Vegna milljón þúsundfætla gat ég ekki mikið setið í moldinni og rifið arfa þannig ég sá um að sópa og hrífa. Þetta var rosa góður dagur og við vorum mjög dugleg að bera á okkur sólavörn númer 30 ! Það þýðir nú ekki að taka áhættu með sólina, þið vitið það gott fólk. Bjarki var ekkert smá duglegur enda er garðvinna eitt aðal áhugamál hans, því miður er ekki eins farið með mig. En mér finnst rosalega gott að geta verið með honum og fengið verk þar sem ég þarf ekki að skríða í beðinu með ormum og pöddum. Í staðinn þá stjanaði ég bara og sótti kalt að drekka og sá um að sólavörnin yrði borin á andlit, axlir, bak, hendur og fætur.
Svo sátum við bara úti langt fram á kvöld og elduðum dýrindis barbeque kjúkling með salati, frönskum og hvítlaukssósu. Borðuðum ekki fyrr en klukkan 21 en gátum samt sem áður setið úti :)
Eftir mat förum við á fótboltavöllinn hér og spiluðum smá fótbolta, ég reyndi að kenna Bjarka að gefa beint í löngum sendingum og hann reyndi að kenna mér að gefa beint í að halda á lofti. Bjarki fékk nú aldeilis góða hreyfingu þar sem hann var alltaf að spretta á eftir skökku og löngu boltunum sínum. Mjög hressandi að fara aðeins út að sparka bolta.
Fyrir og eftir myndir
Fyrir
Eftir :

Fyrir :
Eftir :







namminamm..



Bjarki í nýrri skyrtu. Rosa flottur. Hann er búinn að taka við af öllum mínum klaufaskap, Bjarki dettur niður stiga, rennur á rassin á grasi og dettur á gangstéttum algjörlega tilviljanakennt.
Í dag var aftur æðislegt veður, jibbí :) Við förum niðrí bæ og löbbuðum þar sem íbúðin okkar er. Erum ekkert smá spennt. Rosaleg staðsetning. Getum labbað allt og allt ótrúlega danskt og kósí þarna í kring. Mikið af sætum kaffihúsum, töff búðum og svo ég nefni ekki þessi dýrindis bakarí og kökubúðir. Við röltum og röltum um kát og hress þangað til við vorum bæði að deyja í löppunum (það þarf greinilega að bæta aðeins þolið í göngu).
Bjarki litli fékk svo blóðnasir í miðri göngu og þurftum við að stoppa vel og lengi í horni á meðan það jafnaði sig, sem betur fer vorum við með pappír. Þegar við fórum svo heim úr bænum fórum við í rafmagnslausa lest og settumst bara og byrjuðum að spjalla hátt og vel. Svo loks þegar lestin kemur úr undirgöngunum þá kemur kona að okkur þvílíkt pirruð, sussar á okkur og bendir okkur á að við séum í Silent zone og hun vill bara frið til þess að lesa bókina sína. Við steinþegjum eftir það en alltaf heldur konan áfram að horfa á okkur og andvarpa. Vorum svo sannarlega ekki í uppáhaldi hjá þessari litríku konu. Hún var nefnilega í bleikum bol, grænan klút, fjólubláum buxum og gulum skóm. Rosalega góð litasamsetning verð ég nú bara að segja.
Við komum heim og horfðum á HM, okkur finnst það mjög gaman :) Bjarki sofnaði yfir Grikkland - Nigería, enda vaknaði hann á undan mér. Það var nú einn leiðinda leikur sem einkenndist af leikaraskap og væli að mínu mati. Í kvöld var svo fengin pizza (já mæður og feður ég veit ykkur þykir erfitt að trúa því upp á okkur) við nenntum ekki að elda. Höfðum bara pizzu og Faxe Kondi (tilboði í Rema) og horfðum á Mexikó - Frakkland, mjög ánægð með sigur Mexíkó :)

Bjarki súper happy að labba á torgi rétt hjá íbúðinni okkar komandi.


Dúllumynd


Sérstök mynd, tileinkuð Ragnheiði minni :) Múta þér með McDonalds, býð þér 1stk hreinan ostborgara,franskar og kók ef þu kemur til Köben :)

Gleðilegan 17.júní kæra fólk :) Vonandi höfðuð þið það gott og kíktuð á mannlífið