Jæja við erum ekki ennþá komin með skattkort né kennitölu. Á föstudaginn vöknuðum við klukkan 08:00 og lögðum í leiðangur á skrifstofu komandi vinnustaðar okkar til þess að fá einhverskonar vinnusamning svo að við gætum nú sýnt skattinum og kommúninni að við værum ekki svindlarar sem ætlum að reyna vera hérna í mörg ár og þiggja frá þeim pening. Það var 45 mínútur í lest og þurftum svo að labba að skrifstofunni sem er á Gammel Køge Landsvej 11. Í grenjandi rigningu komumst við þangað, en nei nei þá var hurðin á húsinu læst, við stóðum þarna eins og ósjálfbjarga simpansar og biðum bara þangað til tvær konur sáu okkur og opnuðu og spurðu : Hej ,kan vi hjælpe dig med noget?
við : Ja, vi skal snakke med Heidi om vores arbejde.
konurnar : No No, no jobs here sorry. Og ætlaði konan bara að loka á okkur. Ekki leist okkur á það og breyttum við þá yfir í enskuna og ég tala eins og fædd og uppalin í Texas : We are here for the rengørningservice (þvílíkur USA hreimur, Bjarki gat varla haldið hlátrinum inni sér). Eftir þó nokkuð tal við þessar blessuðu konur sem sögðu að þetta væri ekki einu sinni rétt gata né að þetta hús væri númer 11 (þrátt fyrir að það hafi staðið á byggingunni) þá labbaði sómalísk stúlka inn sem fór með okkur á réttan stað og töluðum við þá við þessar indælu konur sem gerðu blað handa okkur að við værum með vinnu hjá þeim í minna en 3mánuði.
Þá byrjaði nú fjörið, þurftum að taka strætó að skattinum, Bjarki að fríka út af stressi með Krak(strætó- og lestakort af allri Köben) alla strætó ferðina var hann : OKei á hvaða götu erum við ???
ég nefndi hverja götu sem við keyrðum á og Bjarki fann þær aldrei og hélt að við værum svakalega villt. Ég var löngu búin að sjá hvar við ættum að stoppa þar sem það stendur inni í strætónum, en hann heyrði ekkert í mér útaf stressinu og ég leyfði honum bara að halda því áfram þangað til við komum að stoppistöðinni hjá skattinum.
Þegar þangað var komið töluðum við við einn leiðinlegan karl sem var ekkert að fatta það að við værum frá ÍSLANDI ekki Danmörku og þrátt fyrir að við sögðum í byrjun að við kynnum nú ekki mikla dönsku þá talaði hann bara og talaði og þegar við töluðum ensku þá bara hætti hann að tala og vildi alls ekkert segja á ensku. Samt vinnur hann í þeirri deild í skattinum sem sér um útlendinga. Það kom nú ekki mikið úr þessari ferð í skattinn nema það að við þurfum bara að bíða þangað til skottkortið verður til og sent til okkar með kennitölu.
Eftir þessa 4 tíma ferð fórum við með Tinnu í DanskeBank sem við vorum búin að hringja í og þau sögðu að það kostaði ekkert að stofna reikning og við þyrftum ekki að hafa kennitölu bara vegabréf, annað kom nú á daginn og kostaði það 300 DKK og við þurftum bara víst að hafa kennitölu = Fýluferð !
Kíktum í Lyngby center og á leiðinni heim prófuðum við pizza stað sem við smökkuðum ógeðslegasta kók alheims en ágætis pizzu, röltum svo bara heim í rólegheitunum og höfðum það huggulegt. Fórum út að skokka í rigningunni eftir matinn, það var ansi hressandi.

Hugrún ballerína

Á Laugardaginn vaknaði Bjarki eldsnemma og keyrði fjölskylduna á flugvöllinn. Við vöknuðum og röltum í Nettó þar sem við versluðum í matinn, frekar erfitt að labba með pokana þessar 20mínútur. Það er alveg svakalegt hvað allt sem er þekkt eins og t.d. Coca Cola, Kellog's, NAMMI og snakk er rosalega dýrt. Fórum svo niðrí bæ klukkan 4 þar sem allt var að loka kl. 4 eða 5, gleymdum alveg að það lokar allt svo snemma hér um helgar (reyndar bara alltaf). Við sem erum alltaf í Hagkaup og Nóatúni hvenær sem er dags erum alveg miður okkar hvað allt lokar snemma hér, maður þarf að plana allt fram í tímann, ekkert hægt að fara út í búð ef þú færð skyndilega löngun fyrir einhverjum mat.

Kíktum til Hrafnhildar, Bergþóru og Hönnu Siggu út á Amager í Dominos pizzu og skemmtilegheit. Gott kvöld þar sem var mikið hlegið :) Kíktum aðeins í bæinn með þeim og svo í lestina heim að lúlla.

Dagurinn í dag búin að vera algjör kósídagur með snakk, nammi og kók. Vöknuðum ekki fyrr en klukkan 1 og fengum okkur morgunmat, horfðum á sjónvarpið, spiluðum fótbolta, elduðum fajitas og sitjum nú að horfa á Þýskaland - Ástralía í HD. Loksins virðist veðrið vera að skána,en það er rosa huggulegt veður núna. Ætli við förum ekki bara út á pall með teppi.

Vonum svo bara að sólin fari að sýna sig :)
hahaha smökkuðuði í alvörunni ógeðslegasta kók alheims fröken harðorða :D flott blogg og flottar myndir líka meeen! hlakka til að koma út múha :) Skemmtiði ykkur mega vel þangað til, þótt erfitt verði i know :) venlig hilsen Helena Rós den danske pige i august hope jeg
ReplyDeleteEn skemmtilegur matreiðsluþáttur hjá ykkur við slefuðum alveg og minnumst þessara máltíða hér hjá okkur þær verða ekki aftur fyrr en í sept. En flottar myndir og skemmtilega sagt frá einni langri strætóferð, en svona er að vera útlendingur fín reynsla fyrir ykkur mér finnst þú nú kvarta dálítið mín kæra hvað með smá jákvæða sálfræði á þetta
ReplyDeletekk
mora
Sé núna hvar rósótta snyrtitaskan mín er ekkert smá af snyrtidóti sem ein ung stúlka tekur með sér jæja þetta virðist vera að ganga núna.
ReplyDeleteSkemmtileg helgin hjá ykkur vonandi fer sumarsólin að kæta ykkur
Rosalega er síðan orðin flott hjá ykkur algjört listaverk barasta
ReplyDeletelike á myndina af mér, þú ert greinilega með bestu vinkonu þína ofarlega í huga þó þú sért í öðru landi :) og líka like á að þið séuð að horfa á mína heimamenn spila, þjóðverjana, sehr gut !
ReplyDeleteástarkveðjur,
Hugrún
Lika á þetta blogg! Alveg mega skemmtilegt að lesa! Léttir uppá vinnudaginn get ég sagt ykkur :D Fyrir utan það að þið gerið mig dauðsvanga með þessum girnilega mat!! En þið eruð flottust elskurnar! Saknsakn :* kv.raggapagga
ReplyDeleteÞað er ekki smá flott þetta blogg hjá ykkur. Þið fáið 10 fyrir þetta(9,5), það má alltaf bæta eitthvað. Þið njótið greinilega að elda mat saman og mér sýnist að þið komast ágætlega yfir fyrstu hindranir ss. skattkort og bankareikningur. Athugið bara hvort þið eigið ekki þessi 300DKK á bankabókin ykkar
ReplyDeleteHa ha alveg er þetta frábært að lesa en dýrt ég hélt það orð væri ekki til í ykkar orðabók
ReplyDeletemútthildur
Mikið voruð þið myndarleg í eldhúsinu bara eins og þið hafið ekki gert annað en að brytja niður grænmeti síðan þig voruð saman í Nóatúni hér um árið en það var nú eiginlega alveg í gamla daga það er svo langt síðan
ReplyDeleteEn spennandi að lesa þessar skemmtilegu frásagnir ykkar og sjá ykkur svona live
kk
mora
Það er ekkert verið að lífga uppá video upptökuna Helena, snar þagnar alltaf þegar upptökuvélin fer í gang ;)
ReplyDeleteFlott síða gaman að fylgjast með.
Kv. Super Óli bro
Djöfull er ég líka ánægður með myndirnar úr þessari vél hjá þér. Gerðir greinilega góð kaup þar.
ReplyDeleteKkv. Super Óli bro
Mikið líst mér vel á þessi snyrtilega samanbrotnu föt. Uppáhalds myndin mín, ekki spurning.
ReplyDeleteÞað þarf varla að taka fram að litli snúður er þegar orðinn snartvitlaus af söknuði og getur ekki beðið eftir að uppáhaldsfrænkan komin heim.
Kveðja,
Helga
Varðandi snyrtilegur fötin þá minnir þetta mig rosalega á herbergið þitt hérna heima og þá sakna ég þín svooo. Hlakka til að sjá myndir af hagléli, þrumum, sól og rigningu allt í einum pakka, ef ég þekki ykkur rétt þá hlýtur Bjarki að hafa tekið þetta upp á flottu græjurnar sínar
ReplyDelete