Seinustu dagar hafa verið frekar óþægilegir varðandi vinnuna, við vitum ekkert hvernig skattinum gengur að redda okkur skattkorti og kennitölu og í gær vissum við ekki einu sinni hvar við ættum að vinna. En þar sem Bente (yfirmaðurinn okkar) kom úr fríi í dag hringdum við í hana og fengum að vita að við myndum byrja að vinna í ráðhúsinu næsta mánudag. Við vorum mjög fegin að fá ráðhúsið en ekki einhversstaðar þar sem við myndum þurfa að vakna kl 4 og byrja að hjóla til að ná að mæta kl 6! Svo ansi mikill léttir þar á ferð.
Eftir að við hringdum í Bente löbbuðum við í Lyngby Center og fórum þar í bankann með vottorð um að við séum íslenskir ríkisborgarar því það er greinilega nauðsynlegt að hafa með ef maður er að stofna bankareikning og maður hefur ekki danska kennitölu. Einnig tókum við smá búðarrölt og keypti Helena sér buxur, naglalökk og sápur, og hafði ég einar nærbuxur úr krafsinu :)
Svo undanfarna daga höfum við notið þess að sofa örlítið lengur og þar sem veðrið hefur ekki leikið við okkur höfum við bara komið okkur vel fyrir í sófanum og horft á HM í háskerpu. Svo komumst við að því eftir mikla verðkannanir í hinum ýmsu búðum að Rema 1000 sem er hérna rétt hjá er bara miklu betri og í flestum tilvikum ódýrari en Nettó. Til dæmis er kjúklingurinn, 450 g, 4 DKK ódýrari í Rema en í Nettó, en hann selst hérna á 25 DKK sem er rúmur 500 ísl. Það er bara ágætur prís fyrir okkur fátæklingana og þurfum við að fara virkilega vel með peningana þar sem við fáum einungis fjórðung af fullum launum í júlí þar sem við byrjum þann 21.
Í Rema er einnig tilboð á ís, pakkinn (6 stk) á tíkall, skid og ingen ting og erum við nú þegar búin að kaupa 2 kassa, nýtist vel í hitanum.
Í gær keyptum við okkur hakk og gerðum pizzabollur. Kom mjög vel út og varð eftir afgangur sem við borðuðum í dag, enda er það á sparáætluninni að éta alla afganga :)
Svo þegar við vorum nýkomin heim í dag úr Lyngby Center kom haglél og þrumur, mjög skrítin veðursamsetning, þannig enn og aftur tókum við sængurnar fram og horfðum bara á HM á meðan veðrið var svona.
Svo 1 og hálfum tíma seinna var aftur komin bongóblíða og röltum við þá út í Rema og keyptum okkur pizzadeig og liggur hún núna í ofninum að bakast á meðan þetta er skrifað. Planið í kvöld er að horfa á Brasilíu - Kóreu og kannski taka smá skokk eða fara í fótbolta.
Svo að við kveðjum núna, endilega kommentið þið og verið með í þessu ævintýri okkar :)
Vá þetta var aldeilisdembuveður, alveg eins og þegar við pabbi þinn fórum í fyrsta skipti til Köben fyrir 27 árum. Á leiðinni frá flugvellinum var fyrst sól, síðan haglél snjóboltar nánast og þrumur, við vorum skíthrædd höfðum aldrei séð svona náttúruundur.
ReplyDeleteEin spurning hvað gerðuð þið bið afganginn af bollunum ekkert smá flottar. Dugleg að bjarga ykkur og set algjört superlæk á sparnaðaráfromin þrátt fyrir smáfeilspor í dag í sápudóti.
Gott að þið komist í vinnu á mánudag njótið nú bara frísins
ég borðaði afganginn í dag :D
ReplyDeleteFrábært blogg hjá ykkur, gott að fá fregnir af ykkur svona vel tilreiddar, það er að sjá að þarna eru meistarakokkar á ferð, hlakkar til að koma og smakka kræsingarnir í sumar.
ReplyDeleteDjíii slakur á veðrinu en djöfull hafið þið það gott þarna í húsinu. Hvenær verða svo flutningar yfir í holuna?
ReplyDeleteKkv. Super Óli bro
P.S. Refur sagði He.. í dag, bara byrjaður að læra nafnið á uppháhalds frænku sinni ;)
Ég er enn að hugsa um bollurnar þær eru svo flottar, eruð þið búin að reikna út verðið á bollumáltíð, pizzamáltíð og fæhítasmáltíð. Spennt að heyra mér og sjá meira af matreiðslunni. Setti lítið saknaðarljóð á vegginn hjá þér Helena set það inn hér líka seinna
ReplyDeletemora
hæ frænka
ReplyDeleteHer er nu bara góður kokkur á ferð flottar bollur
gamann að fylgjast með ykkur Allir byðja að heilsa knús á ykkur
kv Linda
Mamma : Bollumáltíðin var nú ekki dýr þar sem við áttum allt nema sósuna og hakk. Já ég sá ljóðið, rosa flott. Hvert hvarf Helgi ? Ætliði ekki að koma á skype í kvöld?
ReplyDeleteÓli :Flutningur í holuna verða 1.júlí :)Haha já æj greyið Rebbi, saknar mín svona :( Jæja það er nú ekki langt þangað til ég kem. Ætli hann verði eki byrjaður að hlæja,labba,tala,syngja og lesa í september :)
Er Helena byrjuð að borða afganga??? Já detta nú úr mér allar dauðar lýs úr höfði !!
ReplyDeletep.s.sjúklega flott naglalökk
Bjarki borðaði afgangana haha ég fékk mer bara brauð og jógurt. Annars get ég nú alveg borðað svoleiðis skal láta þig vita þegar það gerist :D Hver veit nema ég búi til kjúklingasalat úr afgangs kjúkling. En Bjarki er að reyna lata mig borða bara nammi um helgar, það gengur svo sannarlega ekki vel. Serstaklega ekki með besta Haribo nammibás í búðinni okkar. I staðinn kaupi ég 6stk snickers ís annan hvern dag og hugsa um þig meðan ég borða hann Hugrún :)
ReplyDeleteflottust!! Ekkert smá skemmtileg blogg hjá ykkur! Algjör unaðarlesning í vinnunni! :) og Helena þessar buxur eru ógeðslega flottar!!! Ekkert smá kúl! Hafið það gott elskurnar minar :)
ReplyDeleteMMM snickers ís afhverju sagðiru þetta !!! :( er ennþá að syrja ferðirnar okkar í grímsbæ að kaupa snickers topp
ReplyDeleteÞett leit mjög vel út hjá ykkur, vel gerðar og girnilegar bollur ;)
ReplyDeleteEn þessi orð sparnaður, borða afganga og spáð í hvað hlutirnir kosta, mér finnst þetta hljóma eitthvað svo skrýtið urðuð þið nokkuð fyrir eldingu þarna í þrumuveðrinu ;)
Gaman að fá að fylgjast með
knús fá mútthildi