Jæja, þá er þetta ævintýri loksins byrjað. Lentum á slaginu kl 6 á staðartíma eftir að hafa farið í gegnum nokkra kílómetra af skýjaklösum, sem sagt mjög þungbúið veður sem tók á móti okkur. Töskurnar okkar komu strax fyrir utan gítarinn sem lét ekki sjá sig. Við biðum og biðum og aldrei kom hann á færibandið. Helena fór þá að leita að hvort það væri ekki eitthvað "sérstakur farangur" afgreiðsla einhvers staðar en fann hvergi eftir stutta leit. Enn biðum við við færibandið og aldrei kom gítarinn. Þá var komið að Bjarka að leita og kom þá í ljós að Helena hafði aðeins leitað í kringum næsta færiband og ekki lengra en það :) En "sérstakur farangur" afgreiðslan var í endan á salnum þar sem gítarinn hafði legið spakur í svona 20 mínútur. Þá vorum við loksins komin með allt og ætluðum að drífa okkur út þegar Helena lífsbjargari fattar að við höfðum skilið bakpokann hennar eftir á bekknum þar sem við sátum. Það var ekki merkilegra en það að í þeim bakboka var allur gjaldeyrinn okkar, báðar myndavélarnar okkar, tölvan hennar helenu, vegabréfin okkar, allir samningarnir og bara allt það sem við þurftum til að hefja þetta ævintýri í Köben. Það er greinilega eitthvað sem gerist þegar við tvö ferðumst, við gleymum alltaf einhverju. En sem betur fer föttuðum við þetta þegar við vorum komin um 10 metra frá bekknum! Hefði þetta gleymst... ég vill ekki tala um það einu sinni. Fjúff!
En í dag, 10. júní, fórum við í leiðangur í leit að kennitölu. Það reyndist erfiðara en nokkurn myndi gruna, þau í "kommúnunni" vildu ekki gefa okkur kennitölu því við höfðum ekkert í höndunum til að sýna að við ætluðum ekki að vinna lengur en 3 mánuði, við gætum sannað það með starfssamningi en hann fáum við ekki nema við höfum kennitölu.......... stupid kerfi! En eitthvað náðum við að fylla út sem er sent einhvert og einhver mun kíkja eitthvað á það. Tinna hringdi svo fyrir okkur í Bente, og kom í ljós að Bente er í fríi og einhver Heide er í hennar stöðu núna. Hún bað okkur um að mæta á morgun(föstudagur) og saman myndum við "redda þessu bara einhvernvegin" eins og hún orðaði það :/, svo það er spenndandi hvað kemur í ljós þar.
Annars áttum við fínan dag í rigningunni, slökuðum bara á og plönuðum næstu daga. Helenu langar ansi mikið á útsöluna í Monki á morgun og svo er okkur boðið heim til vinkonu Helenu á laugardaginn, allt að gerast. Over and out
Glæsilegt =)
ReplyDeleteflipp
ReplyDeletegott að þíð bjargaði bakpokan á Kastrup, annars hafði þið þurft að koma heim strax.
ReplyDeleteMunið svo bara að það er fullt að skoða í köben, þott það rignir smá
pabblabb
ég er svo glöð að uppáhalds vinkona mín hún helena sé búin að taka upp bloggþráðinn og sé byrjuð að blogga eins og á beees.tk forðum =) gangi ykkur vel með kennitöludraslið,
ReplyDeleteyours sincerely,
Hugrún
p.s.síðasta skipti sem ég reyni aðkommenta á þetta!