Hellú hellú :)
Nú erum við byrjuð í vinnunni í Ráðhúsinu. Við vöknum klukkan hálf 5 á morgnanna og tökum lestina kl.5 í 30 mín. Rosalega hressandi, mætum ungum stúdentum og fólki sem er að fara heim af djamminu að sofa. Það sem kom mér samt verulega á óvart var hversu mikið fólk er á ferli klukkan 5 að morgni til, á Hovedbanegården, búðirnar búnar að opna og nánast engnir rónar. Okkur hlakkar nú ekkert smá til að geta vaknað klst seinna og hjóla í vinnuna.
Fáum íbúðina á mánudaginn, þá verðum við alveg downtown, æðisleg staðsetning.
Vinnan er aðeins of nice, skúrum, moppum og þurrkum af á sniglahraða. Maður þarf að reyna finna sér eitthvað að gera eins og t.d. þrífa glös og diska í vaski í stað uppþvottavélar, pússa skráargöt, þrífa gluggakistur, gefa blómum vatn og margt fleira til þess að geta verið í vinnunni til kl. 11. Konurnar sem vinna þarna eru alltaf að spurja okkur hvort við séum ekki þreytt ef við erum búin að ryksuga eða skúra eina skrifstofu, greinilega finnst þeim þetta erfiðara en okkur. Ef maður vinnur hratt segja þær ; neinei ekki svona hratt bara hægt og rólega. Semsagt núna fyrstu dagana verðum við með konum sem eru að kenna okkur og svona, svo munum við líklegast vera bara ein og þá getur maður haft ipod bara og svona :)
Við mætum til vinnu kl. 6:00 síðan er kaffitími strax kl. 7:00 sem á að vera í 10mín en þær taka allar 20-40 mínútur. Svo er unnið til 9 og þá er kaffitími í 30 mín sem verður yfirleitt að 45 mín. Á föstudögum má svo yfirleitt fara klst fyrr, þannig að á föstudögum eftir seinna kaffið erum við að vinna í korter og svo heim. Þetta er alveg óóólýsanlega nice og góð vinna sem líður svo hratt og náttúrulega þvílíkt frábært að vera búin svona snemma og eiga allan daginn eftir !
Við mætum til vinnu kl. 6:00 síðan er kaffitími strax kl. 7:00 sem á að vera í 10mín en þær taka allar 20-40 mínútur. Svo er unnið til 9 og þá er kaffitími í 30 mín sem verður yfirleitt að 45 mín. Á föstudögum má svo yfirleitt fara klst fyrr, þannig að á föstudögum eftir seinna kaffið erum við að vinna í korter og svo heim. Þetta er alveg óóólýsanlega nice og góð vinna sem líður svo hratt og náttúrulega þvílíkt frábært að vera búin svona snemma og eiga allan daginn eftir !
Við vorum að hugsa um það um daginn að ef þetta væri á Íslandi þá væru örugglega bara svona 5 starfsmenn með ráðhúsið en hér eru starfsmennirnir 20-30 !
Bjarki er rosalega duglegur og góður í dönskunni en ég er ekki alveg jafn mikið fyrir að tala hana þar sem allt kemur svolítið skringilega út hjá mér. Konan sem kennir mér er líka gömul og er ekkert að tala hægar fyrir mig heldur talar bara eins og ég sé dönsk en ég skil nú það mikilvægasta. Konan sem kennir Bjarka er hinsvegar tyrknesk þannig hun talar mjög skýra og einfalda dönsku og kemur þeim mjög vel saman. Konurnar sem vinna þarna með okkur slúðra og slúðra og tala mikið um hvað lífið þeirra er ömurlegt og kvarta rosalega mikið en samt eru þær nú rosa finar og við erum ekkert smá ánægð með þessa vinnu. Þessir fáu tímar líða eins og nokkrar mínútur, og líka gott að fá að hittast í 9 kaffinu. Svo eru líka 3 aðrir íslendingar að vinna með okkur þannig við sitjum öll saman í kaffinu :)
Dúllur
Á miðvikudaginn mættum við fyrsta vinnudaginn okkar í Ráðhúsið hress og kát og kláruðum daginn þar, fórum svo bara heim. Ég fékk ekki að gera neitt nema að horfa á konuna þrífa, hún er með aðalskrifstofurnar allavega stærstu og hjá meistaranum svo þrífum við líka 2 fundarsali. Svo dagurinn leið nú frekar hægar hjá mér heldur en Bjarka. Þvílíkt þreytt en ég náði að pína mig til þess að sofa ekki um daginn en Bjarki fékk sér stuttan lúr. Við sóttum Silju litlu á leikskólann og fórum í Rema að versla aðeins. Bökuðum mjög skrítna köku fyrir matarboð sem Tinna og Kasper voru að halda um kvöldið. Því miður bragðaðist hún rosalega illa, hugsanlega vegna mistaka í vigtinni. Allavega fannst okkur við alveg fara eftir uppskriftinni.
Í matarboðinu var grillaður kjúklingur á spjóti með meðlæti, ótrúlega gott. Ég og Bjarki vorum svo niðri í herbergi bara að taka til og fórum ágætlega snemma að sofa bara, ætluðum samt að fara sofa kl. 21:00 en svo komst ég algjörlega yfir þreytuna og fór í svefngalsa. Þá hlæ ég og tek til og Bjarki gat ekki mikið sofið í þeim látum.
Á fimmtudaginn vorum við hress og kát í vinnunni (of course) og kláruðum kl. 11. Ég fékk að ryksuga, moppa og skipta á ruslapokum (allt að koma). Eftir vinnu kíktum við aðeins í bæinn og vorum við bæði að drepast í löppunum enda á ömurlegum skóm. Bjarki keypti sér sandala og 2 boli og ég fékk mér eina strigaskó. Mikið vorum við fegin að komast í betri skó. Bjarki henti gömlu skónnum á Strikinu og við vonum bara að einhver heimilislaus hafi náð í þá :)
Danmörk - Japan var síðan um kvöldið, skítaleikur fyrir Dani. Ætluðum að fara á Ráðhústorgið en nenntum svo ekki, sem betur fer. Danirnir hafa verið klikkaðir þar.
Skór
Í gær (fös) mættum við kl. 6:00 og vorum búin kl. 10:00 (sama tíma og búðirnar opna!!) Þegar við mættum í vinnuna vorum við í sjokki ALLT út í drasli á Ráðhústorginu (eftir leikinn) og glerflöskur brotnar út um allt, þegar við löbbuðum heyrðist svona klístur hljóð undir fótunum vegna þess að þeir hafa hent bjór út um allt. Búið var að henda glerflöskum á risaskjáinn og pappírsdrasl ALLSTAÐAR. Pissulykt og bjórlykt einkenndi þennan morgun á Ráðhústorginu.
Ég meikaði nú ekki að mega ekkert gera þannig ég beið ekkert eftir því að hún sagði mer að gera eitthvað heldur tók bara tusku og þreif og ryksugaði og fleira. Held nú að hún hafi ekki verið neitt rosalega pirruð með það.
Síðan hittumst við í kaffinu þar sem ég villtist í ráðhúsinu og var 10 mín að koma mer niðrí kaffistofu þar sem Bjarki beið. Þar var Bjarki tilbúin með brauð handa okkur og ég spyr hann hvar hann hafi fengið þetta brauð og hann lítur á borðið og skilur ekkert í því að það sé ekki þar (Asísk kona var að skera það niður á sama tíma og hann fékk sér). Svo þegar við erum að borga fyrir brauðið og rúnstykkið mitt, kókið og sultuna og konan segir að þetta kosti bara 20 þá skiljum við ekkert en erum fegin því og réttum henni bara 20 krónur. Furðu ódýrt, héldum að hún hafi bara gleymt að slá kókið og rúnstykkið inn. Síðan sér Bjarki asísku konuna sem var að skera þetta blessaða brauð með brauðið sitt í poka. Hún hafði komið í sakleysi sínu með brauð sem hún átti og hún var að bjóða Bjarka hnífinn ekki brauðið þegar hann sagði : JA tak og tók bara brauðið af hennni. Konan greyið þorði ekkert að segja. En Bjarki allavega kom út eins og hin mesta frekja sem tekur brauð af litlum asískum þrífingarkonum.
Við kíktum smá í búðir eftir vinnu og náði ég að kaupa gallastuttbuxur, jakka og 2 boli.
Við lögðum okkur svo þegar við komum heim enda máttum við sofa út í dag og vaka lengi. Elduðum pizzu handa fjölskyldunni í gær, eina með peppó og svo var hin með allskonar drasli, sveppum,maís,beikoni,papríku,skinku og lauk.
Pizzur á föstudagskvöldi.
Fötin sem voru keypt fim. og fös.
Erum ekkert smá spennt að fá íbúðina okkar á mánudaginn kl.18:00. Þá bloggum við og segjum ykkur hvernig okkur líst á þetta litla hreiður. Erum að passa Silju litlu núna, rosa stuð. Söngvaborg og ís getur ekki klikkað.Veðrið átti að vera alveg æðislega gott, glampandi sól og engin ský en það er nú búið að vera skýjað. Svo maður á nú ekkert að vera að treysta á þessa blessuðu spár. En nú í kvöld er geðveikt veður sól og hiti. Vonandi fer sólin að sýna sig á daginn líka :)
Pöddumyndasafnið mitt :
Einhverskonar maurafluga.
VIÐBJOÐSLEG fluga sem kom inn um daginn, engin þekkti þetta ógeð. Vorum skíthrædd en reyndum að halda ró okkar svo Silja litla myndi ekki verða hrædd.
Sæt könguló í vefnum sínum. Hugsa að ég hafi labbað á eða vefur fokið á mig svona 100 sinnum +.
Bestu vinir, snigill og könguló.
Fiðrildi.
Tel dúfur vera pöddur, skíthrædd við þessi dýr !
HAHA pöddumyndasafn!!! love you!!! :) Þetta var helvíti góð færsla og ég er í sjokki með draslið á ráðhústorginu! Shit! En það er ánægjulegt að sjá hvað allt gengur vel og spennandi að sjá íbúðina :) úlalla, ég hlakka til að sjá vide af henni! Hafið það gott múllur.
ReplyDeletehahaha pöddumyndasafn, alveg fullkomlega eðlilegt! FLott blogg men, gaman að lesa og geggjaðar myndir litli ljósmyndarinn minn :) MEGET meget flott föt :D hlakka til eins og ragga að sjá myndir af íbúðinni :) hlakka til að heyra meir.
ReplyDeleteKveðja helena melóna
dúfur eru bara fljúgandi rottur! og pizzan með beikoninu er sjúklega girnileg :)
ReplyDeleteNice að vera búinn að vinna klukkan tíu. Hefur greinilega allt verið brjálað þarna á ráðhústorginu þegar leikurinn var, þvílíkt rusl. En var svo ekki búið að þrífa allt þegar þið voruð búin að vinna?
ReplyDeleteHafið þið ekkert hitt borgarstjóran eða einhvern merkilegan þarna í ráðhúsinu?
Pítsurnar hafa pottþétt staðið fyrir sínu ef þær voru jafn girnlegar og þær líta út fyrir að vera.
til hamingju með nýja hreiðrið ykkar spennandi að sjá myndir þaðan. Vonandi gengur vel að elda á nýjum stað. Eigið þið ekki að vinna til 2 eða er 6-11 eins og fullur vinnutími vegna tímans
ReplyDeleteEn bíðum spennt eftir næsta yfirliti frá ykkur
kk
mora og papa
Maður biður spenntur eftir að fá smá "túr" um nyja kótið ykkar, mér skilst að það var verið að leggja á rúmið i fyrsta skipti, þegar ég reyndi að ná samband við ykkur.
ReplyDeleteVonadi fáum við að nota góðra frásögn áfram nú þegar fer minni tími í transport hjá ykkur.
Njótið vel að vera komin með ykkar fyrstu heimili.
Jú Óli það var byrjað að þrífa torgið og strikið klukkan 6 og allt orðið hreint og fínt þegar við klaruðum vinnuna.Jú við erum örugglega buín að hitta fullt af frægum ráðherrum og borgarstjórum en við bara þekkjum þau ekki :) Eg sé um hreilbrigðisdeildina þannig heilbrigðisráðherran er örugglega frægasta sem ég hef heilsað. En svo eru að vísu líka stórir fundarsalir, hugsanlega margir sem mæta þangað.
ReplyDeleteHelena þú þarft að kíkja í danska séð og heyrt og skoða fræga fólkið.
ReplyDeleteMikið eru Silja og Viktor sæt kríli alveg eins og Bjarki frændi. En hvað er að frétta af tilboðum, sparnaðarmáltíðum og öðrum krúttlegheitum. Endilega haldið áfram að setja inn og leiða okkur í veruleika danskra matartilboða.
kk
Mora
Strax farin að hlakka til að koma í matarboð til ykkar