Tuesday, June 29, 2010

Reifarakaup

Jæja ágæta fólk, nú sitjum við tvö skutuhjúin í holunni okkar með rólega tónlist eftir erfiðan dag og skrifum þetta. Í gær kl 18:00 fengum við íbúðina okkar loksins eftir langa bið, þó að dvölin hjá Tinnu hafði verið afskaplega þægileg og góð, og söknum við þeirra strax. En það er alltaf gott að koma í sitt "eigið" og eyddum við kvöldinu í að koma okkur vel fyrir því þetta verður heimili okkar til 1.september. Þó að þessi íbúð sé aðeins rúmir 40 fermetrar, þá er hún ein sú hlýlegasta og þægilegasta íbúð sem hægt væri að óska sér, enda höfum við núna hreiðrað vel um okkur!







Það fyrsta sem við gerðum var í rauninni að finna netið því enginn er maður án nets enda er netaðgangur mannsins í fyrstu greinum mannréttindalaganna. Ítarleg leit skilaði engri niðurstöðu og hringdum við móðursjúk í Mathilde sem leigir okkur íbúðina og spyrjum hana hvort að það hafi ekki fylgt net með íbúðinni (því við vorum nokkuð viss um að hún hafi nefnt það í upphafi að það væri net) og hún sagði okkur til mikillar ánægju að snúran héngi á bak við einhvern skáp (eini staðurinn sem við vorum ekki búin að leita á). Við grétum úr gleði og stungum kaplinum í tölvuna og tókum út einn facebook-skammt sem róaði taugarnar.

En eftir allt stressið vorum við orðin ansi svöng og höfðum við ákveðið fyrr um daginn að fara á uppáhalds pizzustaðinn minn hér í Köben, Fælledvejpizza, sem liggur hér í 2 mín fjarlægð, mjög svo hentugt. Við örkuðum af stað glöð í bragði og tókum eftir því á leiðinni að hér í Köben situr fjöldinn af fólki bara á jörðinni með einn kaldann og nýtur veðurins, jafnvel þótt klukkan sé langt yfir kvöldmatartíma. Ætli þetta sé ekki þessi dana-andi, ligeglad og alles klar, sem við vonum að við munum kynnast og taka með til Íslands.


En þegar við komum fyrir utan pizzastaðinn sáum við að þeir höfðu að sjálfsögðu ákveðið að taka sér frí frá pizzugerðinni í heilann mánuð, og akkúrat á flutningadag okkar, þann 28 júní. Þeir höfðu greinilega heyrt að við værum að flytja í hverfið og bara ákveðið að flýja. Ekki vissum við að við værum svona dómhörð á pizzunar okkar. Kvöldmaturinn endaði á pizzu frá öðrum stað, jafnvel frá öðrum hnetti því þetta var ein versta pizza sem við höfum smakkað.



En í dag gátum við í fyrsta skipti hjólað í vinnunna og var það afskaplega hressandi. Við vöknuðum tæplega klukkustund seinna en við gerðum þegar við bjuggum hjá Tinnu og munaði þessi klukkutími mjög miklu! Klukkan hálf 6 var sest á hnakkinn brunað af stað. Við runnum í hlaðið cirka 10 mín í 6 sem er mjög fínn tími. (hér vill Helena segja eitthvað um að ég hafi verið stressaður á hjólinu að ná þessu ekki, en ég kannast ekkert við það, enda sallarólegur í flestum tilvikum...)
Við lukum vinnu hálf 11 og brunuðum heim í sturtu. Í gærkvöldi höfðum við gert matarplan fyrir vikuna og skrifað niður öll tilboðin sem hentaði okkur og matargerð vikunnar. Svo að eftir smá stopp heima fyrir löbbuðum við út í Nettó og í fyrsta skipti tókum við kerru í stað handkörfu, því við ætluðum sko að verzla inn! Tilboðin voru góð og fengum við 2 kg af kjúlla, hakki og gulrótum á virkilega góðum prís! Svo versluðum við margt annað inn sem okkur þótti nauðsynlegt að eiga næstu vikurnar því við erum búin að plana að fara helst 1-2 sinnum að versla í viku, ekki oftar, og því ætluðum við bara að kaupa nóg, og helst aðeins tilboð !

Þetta kostaði allt í allt 537 kr sem er um 12 þúsund krónur held ég heima. Okkur finnst það ágætlega sloppið höldum við, þó að við höfum nú ekki mikla reynslu á að versla svona mikið heima.

Stútfullir pokar, drullu þungir!

Þess má til gamans geta að þessi Netto sem við fórum í hafði tekið upp á eingöngu sjálfsafgreiðslu, svo að við stóðum eins og fávitar að reyna að stimpla allt draslið inn og voru komnir 2 starfsmenn að fylgjast vel með okkur og hjálpa okkur því við vorum búin að tefja alla röðina fyrir aftan. Einnig stálum við 2 bönunum, mér fannst ég aðeins sjá 5 banana en þeir voru víst 7. Ætli við gefum ekki einhverjum heimilislausum pening á næstunni og segjum að það sé bara frá Nettó til að styrkja Karmað aftur.

Þegar við höfðum svo dröslast með þessa níðþungu poka heim var stefnan tekin á Føtex því þar voru tilboð á örbylgjuofnum! Já þú ert að lesa rétt, við splæstum í eitt stykki öbba því það var það eina sem vantaði í íbúðina og við verðum að hafa hann til að hita upp afganga og hafragrautinn. Hann kostaði aðeins 399 kr, spottprís fyrir Samsung kvikyndi. Helena var aðeins efins um að við ættum að hjóla út eftir honum en ég sannfærði hana um að ofninn tæki ekkert það mikið pláss og ég gæti örugglega bara hjólað með hann í annari! Annað kom á daginn, þetta var risa kassi og níðþungur, svo að við settum hann upp á bögglaberann á hjólinu hennar Helenu, hún hélt við hann á meðan ég reiddi hjólin. Føtex var í 2km fjarlægð svo að eftir 15 mínútna sveitt labb til baka í þessari hitabylgju vorum við orðin vel sveitt og pirruð þegar loksins var komið á leiðarenda. En við hresstumst strax við þegar við sáum hvað hann er fallegur og passar vel inn í eldhúsið. Til að hrósa okkur fyrir vel unnið verk fengum við okkur ristað brauð með súkkulaði, gulrót og mjólk.



Eftir þetta hjóluðum við aðeins niður í bæ til að fara í Rema-1000, H&M og Monki. Í Rema var nefnilega tilboð á haframjölinu okkar, aðeins 12 kall. Rema liggur rétt hjá þar sem við vinnum en við látum það ekki á okkur fá til að fá þetta á svona spottprís! Svo í H&M náði ég að kaupa mér þægilega vinnuskó. Í Monki var síðan virkilega góð útsala á flottum fötum. Ég hélt að Helena ætlaði að kaupa búðina en ég náði henni svo loksins út úr búðinni en hún hafði þá keypt 2 boli, skó og tösku á skid og ingen ting eins og daninn myndi orða þetta.


Í kvöldmat fengum við okkur okkar margfræga fajitas og ætlum við síðan að nota afgangana úr því í kjúklingasallat á morgun. Vonandi tekst okkur að halda plönunum okkar um sparsemi og hófsemi. Það er kannski ekki hægt að kalla okkur hófsöm í dag, en við keyptum nánast allt á tilboðum og margt af því nauðsynjavörur!

Svo að eftir þennan langa dag er ég næstum því að sofna við að skrifa þetta og hlakka ég til að fara snemma í háttinn.

Góða nótt







Hér er algjör Paradis

6 comments:

  1. Ég er í sjokki, þessi íbúð er bara það krúttlegasta sem ég hef séð !! Núna þarf mín íbúð í haust að toppa ykkar :) Mjög ánægð með innkaupin og enn ánægðari með það að ungfrú Helena sé byrjuð að borða afganga (hef tuðað um þetta við hana í mörg ár).
    Hafið það gott krílin mín og gangi ykkur vel með nammiátakið, he he he
    Hugrún

    ReplyDelete
  2. Ja þvílíkur dagur hjá ykkur þetta blogg er að verða eins og spennandi framhaldsþáttur í sjónvarpinu, Berlínaraspirnar fölna bara í samanburði við þetta. Íbúðin er dásamleg að sjá svo björt og falleg og allt full af tilboðum.Bjarki þetta er nú mannréttindabrot á þér að loka pizzustað svona rétt á meðan þú ert á svæðinu. Helena flottir skór og bolur en common áttu ekki nóg af fötum eins og sumir hér vilja halda fram. Munið bara að tilboð geta reynst manni dýr þegar upp er staðið. En nú erum við þvílíkt spennt að koma í matarboð til ykkar eftir 2 vikur
    kk
    mora

    ReplyDelete
  3. Frábær íbúð!! Ekkert smá kósí, þarna á eftir að fara vel um ykkur, efast ekki um það. Líka skemmtilegt útsýni þarna og æðisleg staðsetning svona þröngar götur og borgarfílingur einhver.

    Er matreiðslubókin sem ég gaf þér í afmælisgjöf ekki að koma að góðum notum þarna Helena? Fullt af matarafgangs uppskriftum þar.

    ReplyDelete
  4. Alveg meiriháttar hugguleg íbúðin það væsir ekki um ykkur á meðan þið eruð þarna, miklu meira gaman að lesa hjá ykkur bloggið en nokkurn tímann bæði Mogginn og Fréttablaðið ;)
    Vona að veðrið leiki áfram við ykkur.
    Passið vel upp á hvort annað,
    Kveðja frá mútthildi

    ReplyDelete
  5. Eruð þið eitthvað orðin slöpp í hitanum hvenær er næsti þáttur á dagskrá

    ReplyDelete
  6. VÁ trúi ekki að þetta blogg hafi næstum farið fram hjá mér! Þessi íbúð er yndisleg! Vá hvað þetta er kósý hjá ykkur, fer ekkert smá vel um ykkur :)
    kisskiss

    ReplyDelete