Tuesday, June 22, 2010

Skattur 0 - 1 Helena & Bjarki [Kvörtunarblogg]

Jæja, seinustu dagar hafa ekki verið sérstaklega skemmtilegir fyrir okkur Helenu og hefur það endurspeglað hve lítið við höfum skrifað hér. Við höfum mest haldið okkur hérna í Lyngby því við erum að spara klippikortin í lestarnar, því við þurfum á þeim að halda þegar við förum að vinna. Á föstudaginn tókum við húsið í gegn og þrifum allt hátt og lágt því Tinna og fjölskylda komu heim svo daginn eftir. Ég átti svo að sækja þau um hálf 3 leitið og lagði ég spakur af stað um 2 því áætlaður tími að keyra héðan til Kastrup er 20 mín.
Ég settist inn í bílinn, styllti GPS'ið og lagði af stað. Ég var ekki búinn að vera lengur en 5 mínútur á hraðbrautinni þegar skrambans tækið vill að ég beygi útaf á næstu afrein, sem ég og geri. Og þá hefst stressið. Allt í einu er ég staddur í íbúðahverfum á meðalhraðanum 50-60 km hraða og ég spyr mig hvar í fjandanum ég sé...
En ég segi við sjálfan mig að ég er á réttri leið, ég mundi 100% eftir því að ég hafði stillt tækið rétt og ekki var mikið í húfi því ég hafði gemsann og þau gátu hringt í mig þegar þau átta sig á því að ég er ekki kominn. Svo ég keyrði bara eins og tækið sagði mér að keyra og það tók mig þvers og kruss um Kaupmannahöfn, ég keyrði fram hjá Rådhuspladsen og Tivolinu, skattinum sem við höfðum verið í seinustu viku og fram hjá Fiskitorvet. Þó nokkrum sinnum var ég viss um að ég væri að keyra á móti umferð og bjóst alltaf við að allir myndu bipa á mig eða ég myndi keyra á hjól, en svo varð ekki. Svo loksins í lokin þá drattaðist tækið með mig aftur uppá hraðbraut í 5 mínútur og þá var ég loksins kominn á leiðarenda, 20 mínútum of seinn. En fluginu seinkaði aðeins svo að eftir á að hugsa var ég bara nokkuð ánægður með þennan útsýnistúr sem tækið gaf mér.

Helena sátt eftir vel unnið verk í dag

En í gær fórum við til hennar Ullu í ráðhúsinu til að reyna að flýta fyrir að fá kennitölu. Við hittum hana og aðra konu sem hét Connie. Connie labbaði með okkur á svokallað Borgerservice, og talaði hún fyrir okkar hönd við ágætan mann sem var fullviss um að við gætum bara tekið lestina út til skattsins og fengið kennitölurnar okkar samdægurs. Eftir þetta röltuðum við til baka í ráðhúsið og töluðum aftur við Ullu. Hún efaðist mjög mikið um að við gætum farið í skattinn bara sí svona og fengið kennitöluna, og kallaði hún í íslenskan strák sem var að vinna og hann sagði okkur að við ættum að fara í Nordjob, þeir myndu útskýra allt.

Það leist okkur betur á og tókum við strætóinn út til þar sem Nordjob er. Þegar þangað var komið blasti við okkur einungis blokkaríbúðir. Sem betur fer var þetta lítil gata svo að við leituðum á öllum dyrabjöllum eftir ,,Nordjob" en fundum ekkert. Eftir 15 mínútna labb um þessa bansettu götu kemur maður labbandi (held að hann hafi verið að koma úr mat) og horfir skringilega á okkur, enda vorum við eins og hálfvitar að labba í hringi. Hann spyr okkur ,,Kan jeg hjælp med noget" og ég segi að við séum að leita að Nordjob. Og voila, þetta var víst gaur sem vann í Nordjob og hleypti hann okkur inn.

Smá innskot : ég held að Nordjob vanti starfsmenn og skilti fyrir utan því það stóð hvergi að þetta var Nordjob, og uppi á skrifstofunni var enginn! Í fyrstu hélt ég að þessi gaur ætlaði að myrða okkur því hann var aðeins of vingjarnlegur að hleypa okkur inn.

Ég tjái þessum gæja erindi okkar og hann segir að hann viti ekki neitt, og sá sem sér um svona mál heitir Klaus og hann mætir ekki fyrr en hálf 2, klukkan þá var 12! Svo að enn eitt svekkelsið þar á ferð.
Svo að við ákveðum að fara út til skattsins og reyna á það sem náunginn á Borgarservice'inu sagði. Frá Nordjob þurftum við því að taka strætó til Nørreport, þaðan taka lest og svo strætó. Eftir 40 mínútur erum við komin til skattsins og máttum við bíða þar í góðan hálftíma eftir að fá viðtal. Ég útskýri fyrir honum hvað gæinn hjá borginni hafði sagt og sagði honum að við þyrftum að fá kennitöluna í snatri því við ættum að fara að vinna daginn eftir. Þá var eins og ég hefði móðgað fjölskyldu hans því hann hreytti því út úr sér að borgin vissi ekkert hvað hún væri að tala um og við gætum bara ekkert fengið kennitölu fyrr en við myndum sýna fram á einhverskonar vinnusamning, sem við höfðum löngu skilað til hans, en hann gat ekki skilið það á minni bjöguðu dönsku.

Á sunnudaginn bökuðum við köku :)

Ef þú ert ennþá að lesa þá ætla ég að lina þjáningar þínar og gera langa sögu stutta. Við skriðum hálfpartin til baka heim í Lyngby: svekkt, fúl, sveitt, svöng og þyrst, með ekkert í höndnum eftir 7 tíma ströggl.

En í dag gerðist allt sem við höfum beðið eftir. Tinna hringdi í morgun hálf öskrandi í skattinn og drullaði vel yfir þjónustuna þeirra og útskýrði fyrir þeim að þeir höfðu ekkert gert nema rugla okkur. Konan sem hún talaði við sagðist ætla að hringja aftur og kl 9 í morgun hringir einn af þessum köllum skömmustulegur og segir að "hann hafi fundið þetta í póstinum og þetta væri komið". Við sóttum þetta svo í dag og í leiðinni fórum við í bankann og fengum reikning, og erum við þá klár í að mæta í fyrramálið að vinna, jibbíjey!!!

Seinnipartinn í dag sóttum við Silju á leikskólann og fórum að versla inn. Við elduðum svo fajitas og ætlum að fara snemma í háttinn því við þurfum að vakna korter í 5 til að ná lest og mæta á réttum tíma. Endilega óskið okkur góðs gengis :)

Silja með bestu vinkonu sinni sem gaf henni djús og rúsínur




Þegar við komum frá bankanum fögnuðum við út á palli með köldum breezer (á tilboði í Rema á 10 kall :) ) því okkur fannst við eiga það skilið, enda var mjög gott veður.

Það besta við þennan skítamánudag var að við fengum okkur pizzu frá vini okkar Mario



9 comments:

  1. Það er bara eitt stórt ævintýri hjá ykkur þarna :þ
    En já, sjáumst kannski í júlí ;)

    ReplyDelete
  2. HAHAHA

    Þið eruð svo sannarlega að fá góða skriffinskukennslustundin sem þið eruð að fá þarna. Held samt að það sé ekkert fast við Danmörku. Maður þarf líka að öskra í síma hérna heima til að loksins gerist eitthvað.

    ReplyDelete
  3. Sammála siðustu ræðumaður og ekki nóg með það þíð fáið fyrsta flokks kennslustund í samgöngutæki í stórborg, kannski eitthvað sem mætti færa hingað heim. Og þessi mánudagur leit nú bara vel út, veðurfarslega(sjá myndir af ykkur), sól og bongóblíða, svo eftirá, var þetta ekki bara "skemmtileg" upplifun?
    Enn og aftur, skemmtilegt blogg hjá ykkur, haldið áfram að vera skemmtileg og bjartsýn, mér sýnist ykkur gengur bara ágætlega.
    Hlakkar til að sjá ykkur bráðum, bið að heilsa heimilisfólkið.

    ReplyDelete
  4. Allt er gott sem endar vel og er þá stóra kennitölumálinu bara lokið. til hamingju með það. En Bjarki þú góður að keyra en af hverju varstu ekki með Helenu á kortinu nennti litla letidýrið ekki með þér. Skemmtileg saga um hvernig lífið er ekki alltaf dans á rósum hjá innflytjendum í Danmörku frekar en annars staðar. Vonandi verður gaman í vinnunni hjá ykkur og allir munu bara brosa til ykkar hlýlega ef ekki þá er eitthvað að í Danaveldi.
    Verður líka spennandi að sjá nýju íbúðina hjá ykkur
    kk
    mora

    ReplyDelete
  5. Það var ekki pláss í bilnum fyrir hana , 2 bílstólar og svo þau 2 og ég :)

    ReplyDelete
  6. þetta er alveg þrælspennandi blogg og skemmtilegt hjá ykkkur og það er einhvers að minnast seinna meir.
    Ég kalla þig góðan Bjarki með að skella sér á rúntinn svona rétt í leiðínni út á völl geri aðrir betur.
    Endilega haldið áfram með þessa pistla ég skemmti mér alveg konunglega yfir þeim
    Kveðja úr íslensku bongoblíðunni
    frá mútthildi

    ReplyDelete
  7. P.s hugsa til ykkar á hverjum morgni uhm en því miður ekki fyrr en að íslenskum tíma kl 6. og þá er nú komið hádegi hjá ykkur ;)
    aftur mútthilda bið að heilsa í bæinn
    fínar myndir af Silju og nýbúunum ;)

    ReplyDelete


  8. Ég er sko að lesa bloggið ykkar :D

    ReplyDelete
  9. Ég kom hérna inná til að fara að skamma ykkur fyrir að sinna ekki uppáhalds vinkonu ykkar heima og blogga fyrir hana og viti menn, þá var bara komið þetta fínasta (og ítarlega) blogg, hugruna.tk hefði verið stolt af ykkur í denn! Gott að þetta kennitöluævintýri ykkar er búið að taka enda og núna getiði snúið ykkur aftur á jákvæðu hliðina!
    KNUS&KRAM
    Hugrún
    p.s.LIKE á breezerinn!!

    ReplyDelete