Thursday, June 17, 2010

Sól og sumar

Heil og sæl kæru hálsar.
Jæja nú erum við mætt hér aftur, ég er að safna pöddu- og dýramyndum fyrir komandi pöddublogg. Bíðið spennt, skíthrædd við þessar köngulær og þúsundfætlur sem sækja hér í hús og garða. Býflugurnar eru mun þróaðri en heima og líta skringilega út.
Eins og þið kæru lesendur hafið tekið eftir þá erum við í miklum matarpælingum og fylgjum tilboðum og afsláttum eftir hvert sem er. En þrátt fyrir það eigum við einnig við mikið vandamál að stríða og það er ........
....
.....
OFKAUP !! veit nú ekki hvort það er orð en ef ekki þá bý ég það til hér með. Þannig er mál með vexti að við förum í búðina á hverjum degi, tilbúin með innkaupalista yfir það sem versla þarf. En viti menn alltaf endum við með fleiri poka en gert var ráð fyrir. Okkur finnst nefnilega svo voðalega gaman í búðini og sérstaklega þá Rema 1000, þau eru dugleg að koma með bæklinga í hverri viku með helling af tilboðum og lýst okkur svo ægilega vel á þau öll. Þannig það heyrist ósjaldan í mér eða Bjarka : Hey, sjáðu. Þetta kostar bara 12 krónur !!!! Venjulega kostar þetta 20. Verðum að fá eitt stykki af þessu. Og : vááá ertu að djóka eigum við ekki að kaupa meira en bara 1 stk ??? Það koma ekki svona tilboð á hverjum degi.
En hér eftir ætlum við að reyna að fara sjaldnar í búðina og vera ströng hvort við annað í því að kaupa einungis það sem stendur á listanum.

Þessi pizza var í matinn hjá okkur þriðjudagskvöldið (óbökuð á mynd)





og já !! LOKSINS fann ég Snickers ísinn minn. Höfum leitað hans út um allt. En hann er nú ansi dýr. 6 Stk á tilboði í Rema 1000 á fim,fös og lau. Nýttum okkur það að sjálfsögðu.

Á fimmtudaginn kom elsku sólin á kreik. Úff það var þvílíkur hiti og ákváðum við að taka aðeins til í garðinum fyrir Tinnu. Vegna milljón þúsundfætla gat ég ekki mikið setið í moldinni og rifið arfa þannig ég sá um að sópa og hrífa. Þetta var rosa góður dagur og við vorum mjög dugleg að bera á okkur sólavörn númer 30 ! Það þýðir nú ekki að taka áhættu með sólina, þið vitið það gott fólk. Bjarki var ekkert smá duglegur enda er garðvinna eitt aðal áhugamál hans, því miður er ekki eins farið með mig. En mér finnst rosalega gott að geta verið með honum og fengið verk þar sem ég þarf ekki að skríða í beðinu með ormum og pöddum. Í staðinn þá stjanaði ég bara og sótti kalt að drekka og sá um að sólavörnin yrði borin á andlit, axlir, bak, hendur og fætur.
Svo sátum við bara úti langt fram á kvöld og elduðum dýrindis barbeque kjúkling með salati, frönskum og hvítlaukssósu. Borðuðum ekki fyrr en klukkan 21 en gátum samt sem áður setið úti :)
Eftir mat förum við á fótboltavöllinn hér og spiluðum smá fótbolta, ég reyndi að kenna Bjarka að gefa beint í löngum sendingum og hann reyndi að kenna mér að gefa beint í að halda á lofti. Bjarki fékk nú aldeilis góða hreyfingu þar sem hann var alltaf að spretta á eftir skökku og löngu boltunum sínum. Mjög hressandi að fara aðeins út að sparka bolta.
Fyrir og eftir myndir
Fyrir
Eftir :

Fyrir :
Eftir :







namminamm..



Bjarki í nýrri skyrtu. Rosa flottur. Hann er búinn að taka við af öllum mínum klaufaskap, Bjarki dettur niður stiga, rennur á rassin á grasi og dettur á gangstéttum algjörlega tilviljanakennt.
Í dag var aftur æðislegt veður, jibbí :) Við förum niðrí bæ og löbbuðum þar sem íbúðin okkar er. Erum ekkert smá spennt. Rosaleg staðsetning. Getum labbað allt og allt ótrúlega danskt og kósí þarna í kring. Mikið af sætum kaffihúsum, töff búðum og svo ég nefni ekki þessi dýrindis bakarí og kökubúðir. Við röltum og röltum um kát og hress þangað til við vorum bæði að deyja í löppunum (það þarf greinilega að bæta aðeins þolið í göngu).
Bjarki litli fékk svo blóðnasir í miðri göngu og þurftum við að stoppa vel og lengi í horni á meðan það jafnaði sig, sem betur fer vorum við með pappír. Þegar við fórum svo heim úr bænum fórum við í rafmagnslausa lest og settumst bara og byrjuðum að spjalla hátt og vel. Svo loks þegar lestin kemur úr undirgöngunum þá kemur kona að okkur þvílíkt pirruð, sussar á okkur og bendir okkur á að við séum í Silent zone og hun vill bara frið til þess að lesa bókina sína. Við steinþegjum eftir það en alltaf heldur konan áfram að horfa á okkur og andvarpa. Vorum svo sannarlega ekki í uppáhaldi hjá þessari litríku konu. Hún var nefnilega í bleikum bol, grænan klút, fjólubláum buxum og gulum skóm. Rosalega góð litasamsetning verð ég nú bara að segja.
Við komum heim og horfðum á HM, okkur finnst það mjög gaman :) Bjarki sofnaði yfir Grikkland - Nigería, enda vaknaði hann á undan mér. Það var nú einn leiðinda leikur sem einkenndist af leikaraskap og væli að mínu mati. Í kvöld var svo fengin pizza (já mæður og feður ég veit ykkur þykir erfitt að trúa því upp á okkur) við nenntum ekki að elda. Höfðum bara pizzu og Faxe Kondi (tilboði í Rema) og horfðum á Mexikó - Frakkland, mjög ánægð með sigur Mexíkó :)

Bjarki súper happy að labba á torgi rétt hjá íbúðinni okkar komandi.


Dúllumynd


Sérstök mynd, tileinkuð Ragnheiði minni :) Múta þér með McDonalds, býð þér 1stk hreinan ostborgara,franskar og kók ef þu kemur til Köben :)

Gleðilegan 17.júní kæra fólk :) Vonandi höfðuð þið það gott og kíktuð á mannlífið

13 comments:

  1. hæ sæta par :D þetta er allt svo kósí hjá ykkur þarna að manni langar að fljúga strax út! Það er búið að vera hundleiðinlegt veður herna og ekkert um að vera nema ofkors 17 júní í dag whoop whoop.
    Hlakka til að lesa næsta og ef þetta komment kemur ekki þá neita ég að kommenta oftar en allt er þegar þrennt er ekki satt :) Haldið áfram að skemmta ykkur og líka fyrir mig. Hlakka til að sjá meiri myndir :D

    venlig hilsen Helena rós den danske pige :)

    ReplyDelete
  2. Þvílíkt kósí líf hjá ykkur og þið geislið af gleði, það er að sjá að hm, sól og ís, tilboðsmatur og matreiðsla sé að fara vel með ykkur. Svona á að njóta lífsins. Helena hefur þú hugleitt að gerast pistlahöfundur svei mér þá ef þú ættir ekki að hugleiða að gerast svona ferðapistlahöfundur. Þá gætir þú ferðast um heiminn og skrifað pistla um það sem fyrir augu ber. Gætir tekið eitt stykki aðstoðarmanneskju með þér eldri konu með mikla ferðareynslu... Þú verður að fara betur með Bjarka, blóðnasir og dett bendir til þess að drengurinn er úrvinda af þreytu .
    kk
    mora

    ReplyDelete
  3. Best að velja bara anonymous og skrifa bara nafnið sitt á commentin ég lenti í vandræðum fyrst áður en ég valdi þessa leið þið gætuð kannski gert leiðbeiningar

    ReplyDelete
  4. Snelld flott mynd af Helenu að koma skælbrosandi úr McDonalds. Það er eins og það eigi að setja þetta á auglýsingaskilti. Svo vil ég að Helena fari að gefa smá report í þessum myndskeiðum, segi frá því hvað þið séuð að gera, hvar þið eruð og svona.


    P.S. Kláraði New Super Mario Bros Wii áðan!!! Svo er það bara Galaxy um leið og ég kemst í sumarfrí;)

    ReplyDelete
  5. Hæ hæ
    Þið verðið að passa ykkur á vellystingunum maður getur fitnað af þeim en ég heyri og sé að þið eruð að brenna vel í fótboltanum á þessum frábæra fótboltavelli sem er rétt hjá ykkur. Er ekki bara tilvalið að þið hendið upp Bónus verslun þarna? ég er sammála með Frakkland Mexico gott að Mex vann. Bloggið ykkar kemur vel út í nýju vélinni minni.
    kk
    helgi pabbi

    ReplyDelete
  6. Mikið er þetta ánægjulegt blogg, mikil gleði og jákvæðni þú hefur greinilega tekið þig á mússímúss :) enda hamingjusöm með mcdonaldsið, og ég sé þessa búðarferð mjög mikið fyrir mér, þú að kaupa allt því það er svo ódýrt !! afhverju viltu samt múta raggý með mcdonalds en ekki mér með snickers ís? :(

    gaman samt hvað þú ert dugleg að blogga, ég vil meina að ég hafi þjálfað þig vel á blog.central.is/byflugur og ég sakna þín strax, var einmitt að tala um það við helgu áðan hvað það væri ömurlegt að hafa ykkur sigrúnu ekki á landinu :( en á sama tíma er ég samt glöð hvað þið eruð að skemmta ykkur vel :D

    p.s.helena ekki vera hrædd við köngulær og þúsundfætlur þú veist að þær eru sauðameinlausar kv.skordýravinurinn

    ReplyDelete
  7. úúúú flott blogg! Jákvæðnin skín :D Lítur allt ekkert smá vel út hjá ykkur. OG þetta tilboð Helena, dísús.... hvernig er hægt að hafna þessu... verð að skoða þetta! það er for sure!

    Elska þessi blogg, svo gaman að lesa :) Hafið það gott elskurnar og hlakka að sjá pöddumyndirnar Lenus :D

    ReplyDelete
  8. Þetta blogg ykkar er alveg fábært og gaman að lesa (Helena er gott efni í pistlahöfund) og sjá hvað þið njótið lífsins ;)
    Ég held að Tinna og Kasper verði alveg hoppandi glöð að sjá garðinn sinn það er ekkert smá mikill munur, og svo eruð þið alveg snilldarkokkar að sjá
    Haldið áfram að njóta lífsins kær kveðja frá mútthildi

    ReplyDelete
  9. Hæ!

    þá er eins gott að maður kommenti eftir allar hótanirnar! skemmtilegt blogg hjá ykkur elskur, pöddu og matarblogg, hvað vill maður meira?! svo þessar fínu myndir hjá ykkur líka, myndin af Helenu og makkaranum er eins og klippt út úr auglýsingu! jæja, þarf að þjóta, er nebbla að fara til NYC ef þið skylduð hafa gleymt því...
    har det bra, lúv Marín

    ReplyDelete
  10. Þvílík reynsla sem var tekin á garðinn, Bjarki 1-0 garður. Annars er frábært að sjá að þið njótið lífsins í Dk og Helena eins gott að þú pískir Bjarka e-ð áfram í æfingunum :)

    Kv. Jói Haralds

    ReplyDelete
  11. Alltaf að éta eh gotterí þarna..það verður ekki pláss fyrir ykkur í flugvélinni á leiðinni heim hehe...langar svo að kíkja á ykkur !! vonandi gengur vel gaman að lesa :)

    ReplyDelete
  12. It is truly a well-researched content and excellent wording. I got so engaged in this material that I couldn’t wait reading. I am impressed with your work and skill. Thanks. best pizza in tempe az

    ReplyDelete