Góður matur, ofát, tilboð, hjól og afslöppun eru orðin sem fá seinustu dögum best lýst. Á sunnudaginn heimsóttum við Tinnu og Kasper og borðuðum saman. Mútta átti afmæli svo að við hittumst öll á skype saman til að óska gömlu kellu til hamingju með daginn. Við hlökkum til að sjá þig í lok júlí !
Við höfðum ákveðið að taka hjólin í lestina, svo við hjóluðum af stað út að Nørreport. Á leiðinni þangað klessir ógeðslegur rónaeiturlyfjafáviti á Helenu sem hafði örugglega stolið hjóli og ákveðið í vímu sinni að fara að hjóla. Í stað þess að biðjast fyrirgefningar byrjaði hann bara að elta Helenu og reyna að tala við hana. Ég var kominn yfir götuna en Helena lenti á rauðu ljósi og varð því að stoppa með þessu ógeði. Þann tíma sem hún beið eftir græna fékk hún að heyra "you very nice baby" og þess háttar tal, en Helena gerði rétt og horfði bara áfram. Svo þegar græna ljósið kom hjólaði hún af stað og hann að sjálfsögðu fylgdi en svo þegar hún stoppaði hjá mér þá loksins hætti hann.
Þegar við komum svo að lestarstöðinni og nýbúin að stimpla, þá segir einhver stelpa við Helenu að í dag þurfi ekki að stimpla því það væri frítt að fara í lestarnar. Svo þar fuku út um gluggann tvö klipp. En ekki var þetta búið því að þegar við komum inn í lestina þá sjáum við að lestin keyrir ekki að stoppistöðinni hjá Tinnu, heldur er endastöðin einni lestarstöð frá. Svo að við þurftum að hjóla þaðan til Tinnu. Við vorum ekki lengi að finna leiðina því að við fylgdum bara strætóstoppistöðvunum.
Tinna eldaði handa okkur kjúklingalasagna sem okkur fannst þrusugott og ætlum við að fá uppskriftina og hafa þetta í matinn einhverntímann. Birgðirnar okkar endast virkilega vel, við eigum enn slatta af kjúkling eftir og hakki svo að við erum bara í mjög góðum málum. Við eyðum ennþá ansi miklu í föt, hluti og mat og við ættum eiginlega að skammast okkar hvað við erum ennþá að spreða. Eeeeen við skulum ekki tala um það meira hérna, við njótum bara tímans saman hérna til hins ýtrasta.
Á meðan þau elduðu þá fórum við með Silju aðeins út á róló og held ég að hún hafi bara haft gaman af því hún hefur víst ekki gert annað en að spyrja "hvor er Bjarki og Helena hen?" síðan við fluttum.
Megastuð!
Þennan sunnudag fór hitinn í um 26° og var blankalogn. Við ákváðum að hjóla niður að vatninu í Lyngby sem er virkilega flottur staður. Sú ferð reyndist vera sveittari en hjólaferðin út í Føtex og endaði ég í kaldri sturtu hjá Tinnu eftir túrinn.
Safari jungle
Sætasta!
Við höfum verið ansi spök síðan á sunnudaginn, ekki mikið gert en að njóta þess að vera búin svona snemma og labba bara um. Mest allur tíminn hefur farið í að ákveða hvað ætti að vera í matinn og svo útbúa hann.
Á mánudaginn langaði okkur að útbúa kjúklingasamloku því það er tilboð á dressingum í Nettó :)
Samlokan var bara virkilega góð, ég bjóst við að geta borðað tvær en með öllu grænmetinu sem fylgdi þá urðum við bara pakksödd.
Svo daginn eftir gerðumst við ítölsk og bökuðum calzone úr afgöngnunum af kjúklingnum. Einnig bættum við smá fersku spínati við og pizzasósu.
Mikið lifandi ósköp var þetta gott. Ein svona sprengdi mig næstum því. Við höfðum þó aðeins of mikinn ost því að allt í einu stóð í Helenu. Hún náði þó að redda sér með því að hósta aðeins og fá sér að drekka.
Nú fer að styttast í að fólk fari að heimsækja okkur í kotið. Mamma og pabbi hennar Helenu koma eftir tæpa viku, pabbi kemur 21 júlí og mamma svo 26 júlí. Svo erum við búin að fá staðfest að Sólrún ætlar að fá að gista hérna með okkur í 2 daga í byrjun ágúst, og svo Helena Rós um miðjan ágúst.
Í dag hjóluðum við í Fælledparken og lágum þar aðeins í sólinni. Við fórum líka í hackysack því loksins fann ég bolta í Tiger. Tiger er virkilega flott búð hérna í Danmörku, örugglega heima líka, ég hef bara aldrei spáð í því. Þarna var fullt flott hægt að finna í íbúðina okkar og munum við nýta okkur Tiger þegar við flytjum í okkar eigin íbúð.
Gosbrunnur í Fælledparken
Helena tók aðeins í gítarinn, hún er fljót að læra!
Í dag kom ég Helenu á óvart og keypti úrið handa henni sem hún var að skoða í dag. Ég lét hana fá smá samviskubit þegar hún var að skoða það og sagði að við værum búin að eyða svo miklu. En útaf því að hún kom mér á óvart með bókina þá ákvað ég að gera hið sama og hjólaði og keypti úrið ásamt svona hjarta úr Tiger. Snickersið er einnig úr Tiger híhí.

Það sem Helena náði að versla sér úr Samsø Samsø. Blái innkaupapokinn er umhverfisvænn og mun koma sér vel í verslunarferðunum okkar í Nettó.
Núna sitjum við og horfum á Þýskaland - Spán. Við keyptum okkur aðgang að TV2 á netinu fyrir 79 kr því að Danir eru ekkert að sýna leikinn frítt á netinu eins og næstum alls staðar annars staðar. Gallinn er að netið er cirka 1 mínútu eftir á, og alltaf þegar það gerist eitthvað rosalegt í leiknum heyrum við öskrin úr næstu blokk eða af næsta pöbb, svo þau eyðileggja leikinn eiginlega fyrir okkur!
Frábært blogg, þið eru svooo sæt og ástfangin, ekkert smá flottur garðurinn sem eruð í þarna. Með þessu áframhaldandi kaupæði óttast ég að þið verðið komin á hausin um næstu mánaðarmót haha.
ReplyDeleteEn þetta eru nú allt svo góð kaup og þið eigið eftir að eiga þetta alla ævi og þurfið þá ekkert að eyða í neitt þegar þið komið heim, eða þannig lít ég á það. Hlakkka rosa til að koma til ykkar.
mora
Djöfull er Helena nett á gítarnum þarna. Dúndur blues taktur bara, líst vel á þetta lil sis, allt að koma. Úrið líka mjög töff en ég er ánægðastur með kokeshi aurabaukinn.
ReplyDeleteHver er eiginlega mismunurinn á calzone og pítsabollum?
Og hvað er skórinn að gera útí glugga? Þið vitið að það er svolítið langt í jólasveinana!
Þið eruð nú meiri rassgatarófurnar þið eruð svo krúttleg :) klárlega uppáhalds danmörkuparið mitt. Annars hrós fyrir gott blogg Bjarki og þá sérstaklega myndirnar af tískuvörunum, finnst að þú ættir að stofna svona tískublogg eins og hin sænska Kenza eða hvað hún heitir. Úrið er sjúkt, en ég hélt að það fengist bara í Afríku? Greinilega allt til í Danmörku!
ReplyDeleteVildi að ég væri á heimsóknarlistanum en ég verð að spara fyrir minni útlandadvöl :( Sakna ykkar samt sárt og get ekki beðið eftir hóp-skype deitinu á laugardaginn !
lots of love,
Hugrún
Ég verð alltof svo hamingjusöm að lesa bloggið ykkar! Þið eruð nú meiri múllurnar. Helena skórnir eru klikkað flottir!! og sömuleiðis röndótta pilsið eða stuttbuxurnar! ( sé ekki hvort þetta er, mikið búin að pæla haha ) Þetta úr er líka aðeins of nett!
ReplyDeleteLots of love til ykkar, Þið eruð aðeins of flottir kokkar krakkar! Hlakka til að vera boðið í mat hoho! =)
Hæ hæ en hvað ég hlakka til að verða boðin í mat til ykkar þetta er svo glæsilega frambærilegt hjá ykkur svo legg ég til að þið farið og talið við þá hjá H&M og fáið að setja upp eina hér í R-víkinni, ég held það gæti borgað sig ;)
ReplyDeleteÞið sýnið þeim bara bloggið með kaupunum og vitið til þeir steinliggja
knús til ykkar frá mútthildi
This comment has been removed by the author.
ReplyDeleteGóð Helena, hafðir greinilega lítið fyrir þessu. Vona að þið njótið Fanta-djúsins sem mamma kom með!!!!!
ReplyDeleteÉg get ekki beðið eftir að koma að heimsækja ykkur :) Þið eruð nú meiri krúttin og þetta er allt e-ð svo yndislegt hjá ykkur.
ReplyDeletep.s. ég er mesti tiger-lúði íslands, ég mun bíða spennt eftir að komast í tiger þarna í dk!
kv.sólrún