Mið : Bjarki var með næsta yfirmanni okkar. Þ.e.a.s. Ulle er aðal og svo er hún Connie. Hún kenndi Bjarka að þrífa allt öðruvísi en hann var vanur og þá fóru taugarnar hans aðeins af stað og smá stress kom. En það gekk nú allt vel og var hann búinn snemma.
Konurnar sem ég og ein önnur íslensk stelpa vinnum með og tökum við svæðunum þeirra núna þegar þær fara í frí, hlæja að því hvað við séum hvítar. Ein sagði við mig : hún Katrín sofnaði í sólinni og varð öll eldrauð, því hún er að sjálfsögðu svona hvít eins og þú. Og þær skellihlógu. Halda greinilega að allir Íslendingar séu skjannahvítir útaf því að við erum það, hefði nú átt að sýna þeim mynd af þér Helena Rós ! Þeim hefði nú brugðið og eflaust haldið að þú værir alltaf í ljósum og að bera á þig brúnkukrem.
Þvottavél nr.4
Hjóluðum heim og tókum saman þvott, löbbuðum í nokkur þvottahús til að athuga hvað væri ódýrast en það kostaði alls staðar það sama svo að við fórum bara í eitt sem er hér 30m frá íbúðinni. Það kostar 30krónur að lata í eina vél = 620 íslenskar. Frekar mikið þannig við pössum okkur að safna 7 kg til að þetta nýtist nú sem best. Annars erum við ömurleg að spara þrátt fyrir að það sé gaman að líta svona vel út í blogginu að segja ykkur frá tilboðum haha. En við pössum okkur nú alveg, erum ekki orðin blönk ennþá :) Löbbuðum um hverfið á meðan þvottavélin vann sitt verk.
Svo er pizzastaður sem heitir Vicky's bagel í blokkinni okkar og við stóðumst ekki mátið og prófuðum, rosalega góð miðað við ógeðslegu pizzuna sem við fengum okkur fyrsta daginn hér á Norrebro. Snickers is í eftirrétt.
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm.....
Nettastur, Justin Bieber
Fim : Bjarki með rosalega leiðinlegri og strangri konu í vinnunni. Hún kallaði alla letinga og lét Bjarka gera allt. Og þetta var akkúrat eini dagurinn þar sem Bjarki svaf rosalega illa og vaknaði þvílíkt slappur með hausverk og hafði enga matarlyst. En í 9 kaffinu fekk hann mat og verkjartöflu og þá gat hann nú heldur betur sýnt kjéllingunni hvað í honum bjó og þreif allt hátt og lágt. Þessi kona þurfti svo að fara til læknis vegna þess að henni var svo illt í höndinni og Bjarki þurfti að vera einn með svæðið hennar (sem er erfiðasta, leiðinlegasta og skítugasta svæðið) næsta dag (föstudaginn). Hjóluðum heim úr vinnunni og lögðum okkur pinkupons.
Paradis ís, mmm
Síðan komu Silja, Viktor, Tinna og Kasper og fórum við á St.Hans Torv og lágum þar í grasinu að leika okkur og sóla. Fengum okkur ís og horfðum á fuglastríð, dúfur og maríubjalla réðst á mig. Rosalega kósí og heitt.
Átu úr ruslafötunum og rifust þessir fuglar, skárri en bévítans dúfurnar samt
Systkinin að vera sæt.
Sjáið það í videoinu hér að neðan. Horfðum á inspired by iceland tónleikana um kvöldið :) Það hefði nú verið gaman að fara á þá. Fengum okkur kjúllasalat í kvöldmat, mega gott :) Notuðum afganga frá fahitas.
namminamm
Fös : Bjarki einn með svæðið hjá konunni. Það var nú þó skárra en að hafa hana rekandi á eftir honum og skipa honum fyrir. Fengum við ekki að fara klukkan 10 eins og alla aðra föstudaga. Engin veit af hverju en mér skildist að það væri vegna þess að það var fólk að koma og skoða hversu hreint allt væri. Og jiii slúðruðu kellingarnar um það að það var ekki leyft að fara einum tíma fyrr, alltaf þegar þær mættu annarri á ganginum þa voru teknar 10-15 mín að tala um þetta allt saman og hvenær aðalgellurnar sem sjá um öll hreingerningarvinnur í Kaupmannahöfn koma og kl. hvað. Svo loka ég nú bara fyrir eyrun og fer að labba um og fylgjast með túristunum taka myndir af ráðhúsinu og pósa.
Kaup föstudagsins
En dagurinn var rosa fínn, ég er loksins farin að mega gera allt og hún treystir mér voða vel fyrir svæðinu sínu, sem betur fer. Hún er alltaf að baktala og slúðra um fólk sem hefur tekið við af henni og það gerði allt rosa illa en hún segir við mig að þetta verði ekkert mál fyrir mig. Vonum að það reynist satt. Eftir vinnu komum við heim og fengum okkur smá kríu, mmm það var gott. Síðan hjóluðum við niðrí bæ og ég keypti buxur og bók handa Bjarka í tilefni þess að hann hefur þolað mig í 1 og 1/2 ár. Tíminn líður sko hratt.
Bókin heitir 1001 albums you must hear before you die) rosalega skemmtileg bók og væri gaman að safna þessum 1001 bókum, til allskonar 1001 movies you have to see before you die, places you have to visit og fleira. Við flettum alltaf upp bara einhverstaðar í henni og látum þann disk á spotify og hlustum. Erum að uppgötva þvílíkt margar hljómsveitir og lög.
Um kvöldið komu svo Hrafnhildur og Bergþóra í pizzu og bjór og kíktum við aðeins út á lífið. Fórum á bar þar sem var live band, jazz band. Það er nefnilega jazz festival í gangi núna í Kaupmannahöfn og allstaðar verið að spila. Mjög skemmtilegt kvöld, minningar sem því miður við festum ekki á filmu. Japönsk/japanskur kona/maður sem fór á kostum í dansi og rokki en vildi svo sannarlega ekki dansa við Bjarka! Vorum allt kvöldi að reyna finna út hvort þetta væri karl eða kona en gátum ekki séð það. Dansaði þvílíka river dansa, rokk dansa, emo dansa og listræna dansa. Allur pakkinn bara. Ragnheiður þetta hefði svo verið eitthvað fyrir þig, hefðum skemmt okkur vel að dansa við þessa/þennan japana !!!
Bandið
Japanin/n að taka gítarsóló !
Erum ekki nógu dugleg að taka myndir þegar við erum að gera eitthvað. Leiðinlegt að burðast með stóru vélina mína.
Í dag var svo brjálaður hiti og Bjarki var nú ekki að meika það (ekki ég eiginilega heldur) þannig við röltum bara aðeins um og vorum svo heima bara að hlusta á tónlist og chilla. Bjarki að spila á gítarinn og ég að lesa sálfræðibók. Bjarki fékk sér svo smá kríu og á meðan þreif ég íbúðina. Bjarki eldaði pizzabollurnar sínar góðu. Síðan bakaði ég köku handa okkur og við snæddum köku, jarðaber og ís í eftirrétt. Það er laugardagur í dag sem þýðir að ég má fara í stóru nammibúðina hjá Tyrkjanum og ég ætla nú að stökkva út og kaupa mer svolítið bland í poka.
Jarðaber
Við erum búin að fá alveg þónokkrar staðfestar heimsóknir, ma og pa koma og ma og pa Bjarka, Helena Rós kemur einnig. Bekkjarbróðir Bjarka flytur bráðlega til Köben þannig þá verður fjör á bæ.
Á morgun var planið að fara á ströndina en það er spáð rigningu þannig við ætlum til Tinnu í staðinn.
Afsakið lelegt blogg, er svo þreytt en vildi samt gefa ykkur smá update :)

Já þetta er gaman hjá ykkur og skemmtilegt eins og fyrri daginn. Það getur verið flókið að vinna við þrif og gera hlutina á réttan hátt sérstaklega fyrir fólk sem hefur kannski ekki mjög fjölbreytta reynslu og þekkingu á því sviði. Það þarf að gera hlutina í réttri röð og vandlega, nota réttar tuskur osfrv. Þetta er ekkert endilega einfalt mál. jæja við höldum áfram að hlakka til að koma til ykkar og skoða nánasta umhverfið sem virðist nokkuð spennandi.
ReplyDeletepabbi og mamma
ps. maríuhænur eru nú fallegustu,rólegustu og flottustu skordýr sem ég hef kynnst
já þær eru það í fjarlægð en ekki þegar þær fljúga á mann. Annars eru þær í svakalegu uppáhaldi eins og alls staðar annars staðar.
ReplyDeleteAllt að gerast hjá ykkur. Hefði viljað sjá myndir af þessum pítsabollum sem þið láguð kylliflöt eftir þegar ég hringdi í ykkur. Það munar ekki um hitabeltisveðrið hjá ykkur þarna. Eina gott að Bjarki fékk stuttbuxur og sandala!
ReplyDeleteí svona hitabylgjuveðri er nauðsynlegt að hafa húfu á höfði og drekka nóg af vatni ekki klikka á þessum grundvallaratriðum því annars verðið þið bara rosasl0pp. Sé að þið eruð bæði komin með fallegan lit það eru allir orðnir þvílíkt spenntir fyrir þessum pizzubollum held að nafnið hljómi eitthvað svo grúvíi alla vega var amma þín að pæla í þessu líka.
ReplyDeletesjáumst eftir viku
djöfull hefði ég viljað sjá þennan japana!! hahaha. Líst samt ótrúlega vel á þetta allt saman og ég er sammála Super Óla að eg er ótrúlega forvitin með pitsubollurnar! Uppskrift væri ótrúlega vel þegin og mynd og kannski meðlætið og svona :) hahah bara kröfur!
ReplyDeleteEn annars er ég að digga buxurnar hans Bjarka, ég keypti líka svona handa Boða á Costa :)
En kisksiss
goood blogg men! Úff hvað ég hlakka til að koma og sýna þessum kellingum hvað íslendingar eru fáranlega tanaðir nema þú helena múha :) CAN NOT WAIT to come :D og nú hættir þú að versla þér föt þangað til að ég kem vúbídú :D kv helena rósós
ReplyDeleteknúhús :)
Helena Rós borðar litarefnistöflur með morgunmatnum sínum svo það er ekki að marka! Annars lenti ég í svipuðu atviki í afríku, þegar Muhammed fararstjóri sagði við mig og Helgu að það veitti ekki af meiri sól á Íslandi greinilega, miðað við okkar litarhaft! Þetta fólk mun bara öfunda okkur þegar við verðum með slétta og fallega húð á gamals aldri, engar hrukkur :)
ReplyDeleteÞið megið endilega skrifa upp þessar uppskriftir ykkar, ég er farin að kvíða fyrir því að elda ein ofan í bara sjálfa mig í marga mánuði í þýskalandi !
Sakna ykkar og sérstaklega þín helenatoffari@hotmail.com :(
p.s. mjög týpískt þú í myndbandinu að leika þér með maríuhænu og svo bregða þegar hún flaug af stað hahaha
p.s.2 hættu svo að posta myndum af snickers ísum