Fyrsti kvöldverður mömmu og pabba, pizzabollur með pasta og hvítlauksbrauði a la Bjarki chef.
Lóla könguló sem gerði nokkra vefi hjá okkur, var á sama stað í langan tima svo alltaf þegar við ætluðum að ná henni, var hún horfin.
Kíktum á Laundromatcafe og þvoðum þvottinn okkar þar, á meðan þvottavélin gerði sitt verk fengum við okkur að borða. Þegar Bjarki opnaði tómatssósuna skvettist hún út um allar trissur, á gólf og stóla. Það má sjá á svip Bjarka að honum brá litla greyinu.
Kjúklingasamlokan mín
Ostborgarinn hans Bjarka. Mega gott allt saman, 40 metra fjarlægð frá okkur, og alltaf einhver íslendingur að vinna þarna. Þannig maður talar íslensku yfirleitt :) En mjög dýrt samt sem áður.
Hjóluðum lengi og langar leiðir með mömmu og pabba. Í blíðskapa veðri án sólarvarnar sem skilaði sér í bruna og rauðkuförum eftir boli. Hér er Bjarki með gott bóndafar eftir bolinn sinn, allt búið að breytast í Tan núna.

Bjarki og pabbi hjóluðu í NETTO.
Bjarki kaffærði mér í sjónum , hann var ekki að þola það hversu hægt ég fór í sjóinn.
Hittum svanafjölskyldu á leið heim frá ströndinni. Bjarki og Pabbi gáfu dúfum, öndum og svönum brauð úr lófa sér. Ég reyndi að halda mér í nálægð við Bjarka útaf þessar dúfur fljúga nú á mann mjög tilviljanakennt og án viðvörunar.
Eyddum degi í Malmö, það var ótrúlega gaman. Allt rosalega snyrtilegt og búðirnar mun betri, meira úrval og allar stærðir til. Skoðuðum okkur um og versluðum. Förum þangað aftur alveg bókað mál.
Giant Sub er til í Malmö, 92 cm takk fyrir !!
Í gær þvoðum við þvott og sátumst á laundromat á meðan við biðum með mömmu. Mamma fékk sér þetta ískaffi.
Næturgöngutúr
Chaoo :)
Æ, hvað ég er farinn að hlakka til að hitta ykkur og sjá 'kótið' ykkar. Ég kem með veigar frá Ölgerðin, skillst að Egils appelsín er nauðsynlegt og ómissandi á matarborðið og það besta til að slökkva þorstan í hitanum. Mér gekk ágætlega að nota annaðhvort Hof eða Tuborg og ætla að fá því staðfest hvort það á ekki við enn, svo gerið pláss í kælinum..... I´m coming :-).
ReplyDeleteAnnars erum við að stikna hér á klakanum, buín að vera Majorka veður hér upp á siðkastið, svo ísbúðir hefur þurft að ráða aukamannskap til að deila út ís til að kæla sjóðheiti íslendingar, svo Majorka hvað??? Ég ætlaði að bjóðast til að koma með smá sól handa ykkur í töskunni, en það þarf vist ekki , eða hvað.
En bloggið maður, frábært og ekki slaka á því, þó gestagangurinn aukist, það er fullt af folki sem biður hungraðir eftir fregnir af ykkur úr köben.
Einkunnagjöf:9,5. Vantar stundum verð og hitastig.
Þið verðið að setja inn uppskrift að pizzabollunum - þær líta mjög girnilega út.
ReplyDeleteOg ég alveg dauðöfunda ykkur af því að vera í Kaupmannahöfn!
ú skemmtilegt blogg! og meeega flott stuff Helena!!! En ég hef tvisvar verslað í Malmö og það er rosa fínt en finnst ykkur H&M flott?? Mér hefur í bæði skiptin fundist hun ekkert spes.. eða hef ég bara verið óheppin??? Allavega alltaf gaman að lesa hvað þið eruð að bralla- hlakka til að lesa næsta :D Og p.s. ég er rosa spennt yfir uppskrift af pitsubollunum :D -knús og kram :*
ReplyDeleteBjarki minn þú verður nú bara að fara að setja upp veitingastað þegar þú kemur heim þú ert svo flinkur í matargerðinni. ég mæli eindregið með þessum bollum þær eru alveg dílisíus. Á nú góðar minningar frá einni af skemmtulegustu Kaupmannahafnarferð sem ég hef farið og eru þær nú ansi margar. Þið eruð algjör krúttíkrútt.
ReplyDeletekk
mora
Er skype alveg út úr myndinni?
ReplyDeletesakna að sjá og heyra ykkur svo viljið þið vera svo væn að tendra á því annars alltaf gaman að lesa hvað þið eruð að bralla og hlakka til að sjá ykkur og kotið ykkar svo ég tali nú ekki um matseðilinn ;)
Það er alltaf gaman að líta hingað inn og sjá hvað á daga ykkar hefur drifið. Vinsamlegast haldið áfram bloggdugnaði :)
ReplyDeleteAkkurru er ekki bloggað meira? Helena, þú hlýtur að þurfa að blogga um einhverjar tuskur og boli sem þú hefur keypt síðan þú bloggaðir síðast.
ReplyDelete